135. löggjafarþing — 101. fundur,  8. maí 2008.

reglugerð um menntun tónlistarkennara.

[11:00]
Hlusta

Kjartan Eggertsson (Fl):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. menntamálaráðherra fyrir svarið en mig langar að geta þess að flestir nemendur á framhaldsstigi í tónlist eru einmitt að búa sig undir atvinnuþátttöku í faginu sem tónlistarkennarar en þarna undir eru mjög mörg fög önnur og mikilvægt að þessi mál komist til betra horfs. Það má nefna hljóðfæraleikara, tónskáld, tónmenntakennara, kórstjóra, tónfræðinga, organista, dægurtónlistarmenn — alveg endalaust. Það eru mjög margir sem þurfa á samræmdri menntun að halda.