framkvæmd náttúruverndaráætlunar.
Hæstv. forseti. Hæstv. forsætisráðherra sagði í ræðustóli áðan að staða okkar í umhverfismálum, umhverfis- og orkumálum eins og hann orðaði það, væri alveg einstök — með áherslu á einstök. Ég vil áminna fólk um að grauta ekki svo saman umhverfis- og orkumálum að menn greini ekki á milli gríðarlegra óafturkræfra náttúruspjalla sem stafa af orkuöflun til mengandi stóriðju fyrir erlend stórfyrirtæki og verndar ómetanlegra náttúrugersema og náttúruauðlinda sem forsjónin og almættið hefur falið okkur, einmitt okkur, að varðveita fyrir heimsbyggðina alla til langrar framtíðar. Tækið sem við höfum til að vernda náttúrugersemarnar okkar er náttúruverndaráætlun sem samkvæmt lögum um náttúruvernd á að leggja fram á Alþingi á fimm ára fresti.
Náttúruverndaráætlun var samþykkt á Alþingi Íslendinga 28. maí 2004. Henni var ætlað að gilda til þeirra fimm ára sem nú eru um það bil að líða. Samkvæmt henni átti að friðlýsa 14 náttúruverndarsvæði. Það má strangt til tekið segja að það sé búið að friðlýsa eitt á þessum fimm árum sem liðin eru frá því að við samþykktum náttúruverndaráætlunina.
Nú er Samfylkingin búin að sitja í umhverfisráðuneytinu í tæpt ár. Hvað hefur hæstv. umhverfisráðherra gert til að reka slyðruorðið af fyrri ríkisstjórnum og fyrri umhverfisráðherrum í þessum efnum? Ekkert. Henni hefur ekki tekist að bæta við einu einasta svæði sem er þó á náttúruverndaráætlun.
Og ég spyr: Hvað líður efndum um náttúruvernd þessarar ríkisstjórnar? Hvenær megum við gera ráð fyrir því að þau 12 svæði sem út af náttúruverndaráætlun standa verði friðlýst?