framkvæmd náttúruverndaráætlunar.
Hæstv. forseti. Nú er gaman að lifa þegar hv. þm. Kolbrún Halldórsdóttir er farin að sakna umhverfisráðherra Framsóknarflokksins. Gott og vel, það má vel vera að þannig sé stemningin í þingflokki Vinstri grænna þessa dagana og (Gripið fram í.) ég hef svo sem ekkert um það að segja. En vegna upptalningarinnar vil ég segja að nú er unnið hörðum höndum að friðlýsingunni, Vestmannaeyjum, Austara-Eylendinu, Látrabjargi, en við vitum líka öll sem hér erum að það er ekkert friðlýst nema sveitarfélögin vilji það líka. Það samstarf þarf að vera í lagi og það þarf að brýna þá skyldu íslenskra sveitarfélaga að náttúruvernd sé ekki verkefni ríkisvaldsins, náttúruvernd er verkefni sveitarfélaganna, allra 78 eða 79 eða hvað þau eru nú orðin mörg.