135. löggjafarþing — 101. fundur,  8. maí 2008.

stefna ríkisstjórnarinnar í heilbrigðismálum.

[11:32]
Hlusta

Forseti (Magnús Stefánsson):

Forseti vill minna hv. þingmenn á þau tímamörk sem gilda og hér fær hver og einn þingmaður að tala í tvær mínútur. Ég vek athygli á því að síðasti hv. ræðumaður talaði 30 sekúndur umfram tímann. (ÖJ: Hefði getað talað miklu lengur.) Forseti vill beina þeim tilmælum til hv. þingmanna að virða þær reglur sem hér gilda.