135. löggjafarþing — 102. fundur,  8. maí 2008.

ráðstöfun andvirðis vatnsréttinda kristfjárjarðanna Merkis og Arnarhóls.

516. mál
[14:36]
Hlusta

Frsm. sjútv.- og landbn. (Arnbjörg Sveinsdóttir) (S):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um ráðstöfun andvirðis vatnsréttinda kristfjárjarðanna Merkis og Arnarhóls.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd fjallaði um málið og fékk Sigurgeir Þorgeirsson ráðuneytisstjóra á sinn fund. Umsagnir bárust frá tveimur aðilum, þ.e. Fljótsdalshéraði og Biskupsstofu.

Með frumvarpinu er lagt til að sveitarstjórn Fljótsdalshéraðs verði heimilt að ráðstafa andvirði vatnsréttinda kristfjárjarðanna Merkis og Arnarhóls á Jökuldal til félagslegra framkvæmda í sveitarfélaginu. Skilyrði fyrir ráðstöfuninni er að hún sé samræmanleg hinum forna tilgangi kristfjárgjafa.

Við meðferð málsins í nefndinni kom fram að andvirði vatnsréttindanna nemur rúmum 20 millj. kr. Einnig kom fram að kirkjuráð telur ráðstöfun andvirðisins samrýmast eins og unnt er í dag upphaflegum tilgangi kristfjárjarða, sem var framfærsla fátækra

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt

Undir nefndarálitið rita hv. þingmenn Arnbjörg Sveinsdóttir, Atli Gíslason, Grétar Mar Jónsson, Gunnar Svavarsson, Helgi Hjörvar, Jón Gunnarsson, Karl V. Matthíasson, Kjartan Ólafsson og Valgerður Sverrisdóttir.