tekjuskattur.
Hæstv. forseti. Þessi umræða er ákaflega áhugaverð. Mér finnst t.d. mjög áhugavert það sjónarmið sem kemur fram í umræðunni að ekki þurfi ekki að taka neitt mið af því sem Alþýðusamband Íslands setur nú fram sem athugasemdir við frumvarpið og menn þurfi ekki að hlusta á neinar tillögur eða varnaðarorð frá Alþýðusambandinu. En þegar Alþýðusambandið leggst á árarnar með að gera kjarasamninga hælir ríkisstjórnin því á hvert reipi, hvað menn séu skynsamir, hvað þeir hafi tekið markverð skref í því að styðja við stöðugleikann. Svo þegar allt er komið í hnút er hóað í menn á vordögum til að ræða við þá. Samt var ekki hægt að fara eftir þeim tillögum sem ASÍ vildi í sambandi við skattamál almennings, um að hækka sérstakan persónuafslátt fyrir það fólk sem lægst hefur launin og styrkja þannig stöðu láglaunahópanna í þjóðfélaginu og væntanlega stöðugleikann í þjóðfélaginu og hafa áhrif á það að rauntekjur fólks væru hærri og verðbólguhraðinn kannski minni. Á góðum stundum er Alþýðusambandinu hælt fyrir góð verk en þegar mönnum líka ekki aðfinnslur þess er gert lítið úr því og þeim málflutningi og athugasemdum sem koma frá Alþýðusambandi Íslands.
Hæstv. forseti. Mér finnst undarlegt hvernig menn standa að þessu máli og tek undir þær áhyggjur sem hv. þm. Kristinn H. Gunnarsson lýsti yfir úr þessum ræðustóli, að samkvæmt hans mati gæti eftirgjöfin af þegar uppsöfnuðum frestuðum skatti af söluhagnaði til ríkisins numið allt að 60 milljörðum kr. Ég hef ekki heyrt menn benda á það með rökum að þessi staðhæfing hv. þm. Kristins H. Gunnarssonar ætti ekki við rök að styðjast. (PHB: Jú.) Ég hef ekki heyrt neinn benda á það með rökum. Það þýðir ekkert, hv. þm. Pétur H. Blöndal, að tala um fugla í skógi. Eigum við að tala um geirfugl sem verið er að bera á borð fyrir Samfylkinguna? (PHB: En fiska í sjónum?) Það þýðir ekkert að vera með svona rök, hv. þingmaður. (Gripið fram í.)
Hæstv. forseti. Alþýðusamband Íslands segir í umsögn sinni, með leyfi forseta:
„Alþýðusamband Íslands hefur fengið til umsagnar frumvarp til laga um tekjuskatt, breyting ýmissa laga, 325. mál.
Frumvarpið felur í sér tvíþætta tillögu að breytingum á skattlagningu aðila í atvinnurekstri:
1. Lagðar til breytingar á reglum um skattskyldu söluhagnaðar lögaðila af hlutabréfum.
2. Lögð er til tilfærsla á skattaumsýslu þeirra lögaðila sem mest umsvif hafa í íslenskum þjóðarbúskap til sérstakrar starfseiningar innan Reykjavíkurumdæmis.“
Síðan segir efnislega um þetta mál, hæstv. forseti:
„ASÍ leggst gegn þeirri breytingu sem lögð er til, að söluhagnaður lögaðila af hlutabréfum verði skattfrjáls en á móti falli frádráttur vegna kostnaðar við hlutabréfaviðskiptin niður.
Þrátt fyrir að á undanförum árum hafi verið gerðar veigamiklar breytingar á skattaumhverfi lögaðila hefur það ekki leitt til aukinnar fjárfestingar erlendra aðila hér á landi og heldur ekki dugað til að halda fé í landinu.“ (PHB: Athyglisvert.) Athyglisvert.
„Ástæðan er ekki sú að skattlagning lögaðila sé almennt ekki samkeppnisfær við þau lönd sem við viljum bera okkur saman við.“ — Segir í umsögn Alþýðusambandsins.
Við höfum staðið að því að lækka skatta á fyrirtæki niður í 18% og væntanlega munum við fara með þá niður um 3% í viðbót og lækka þá í 15%, skattafslátturinn er upp á 16 eða 17% sem við erum að lækka skattana á fyrirtækjunum.
Ekki er hægt að kvarta undan því, hæstv. forseti, að Alþingi og ríkisstjórnin hafi ekki á undanförnum árum lagt sitt á vogarskálarnar til að lagfæra skattumhverfi fyrirtækja. Það hefur markvisst verið gert og í miklu meira mæli en að lagfæra skattumhverfi almennings til lækkunar eins og dæmin sanna og margoft hefur verið sýnt fram á hér í rökræðum. Í því sambandi er hægt að minna á sérstaka forgangsröðun Sjálfstæðisflokksins í skattalækkunum til hátekjufólks á Íslandi þegar sá flokkur tók það upp sem sérstakt forgangsmál í skattamálum að afnema hátekjuskattinn. Það var alveg sérstakt forgangsmál og fyrsta skattamálið sem hér kom inn af því sem ríkisstjórnin vildi ná fram í stefnu Sjálfstæðisflokksins. Það voru náttúrlega alveg geysileg mistök en var í raun og veru gert á sama tíma og við vorum með hálaunasamningana, ráðningarsamningana og eftirágreiðslurnar upp á tugi og hundruð þúsunda til einstakra manna sem störfuðu í fjármálafyrirtækjum og í fjármálageiranum sérstaklega. Stór hluti af því sem hér er verið að ræða um snýr m.a. að umsýslu slíkra fyrirtækja eða fyrirtækja í eigu slíkra fyrirtækja og ég hygg að hv. þm. Kristinn H. Gunnarsson hafi bent á það í máli sínu áðan.
Áfram segir í umsögn ASÍ, með leyfi forseta:
„Varðandi þau rök sem lesa má úr greinargerð frumvarpsins að líkur séu á að þessi skattur skili fremur litlum tekjum vegna þess að hægt sé að fresta skattlagningunni óendanlega og einnig að mörg íslensk félög hafa flutt eignarhald á hlutabréfum til landa sem ekki skattleggja söluhagnað þá vega þau ekki þungt að mati ASÍ.“
Í þessari umræðu er ekki gert nokkurn skapaðan hlut með þessa ályktun ASÍ og aðvaranir. Það er svolítið furðulegt, hæstv. forseti, að þegar stærstu heildarsamtök launþega í landinu koma með sérstakar ábendingar um þetta mál, þá er ekkert gert með þær. Mikið er gert með tillögur ASÍ þegar kemur að launamálum eins og ég vék að áðan, ASÍ var mikið hælt fyrir samningana sem gerðir voru í vetur. Það er eins og að eingöngu sé tekið mið af orðum og tillögum forustumanna launaþegasamtaka á Íslandi þegar það hentar málflutningi ríkisstjórnarinnar, þegar það fellur að þeim áherslum sem ríkisstjórnin leggur til. Þannig er það.
Ég tek undir að það væri miklu nær að bregðast við eins og segir í ályktun ASÍ:
„Eðlilegra er að bregðast við með því að kanna með hvaða hætti hægt er að koma í veg fyrir slík skattundanskot.“
Ég átta mig ekki á því hvers vegna þingmenn í ríkisstjórnarmeirihlutanum líta svona algjörlega fram hjá leiðbeiningum Alþýðusambands Íslands um þetta mál. Mér finnst það vægast sagt skrýtið, hæstv. forseti, að ekkert skuli gert með aðfinnslur Alþýðusambandsins. Ég tel að við séum algjörlega á rangri leið með þetta mál. Við ættum miklu frekar að huga að því hvernig við getum tryggt að fyrirtæki á Íslandi greiði eðlilega skatta hér á landi af hagnaði sínum og þess vegna söluhagnaði og búa þannig um hnúta að þeir peningar renni til ríkissjóðs eins og eðlilegt er að þeir geri samkvæmt skattalögum en segja ekki sem svo: Vegna þess að það er hægt að finna leiðir til að skjóta þessu undan og fresta þessu er ekki annað að gera en að fella þetta niður, þurrka þetta bara út. (SJS: Rausnarlegt.) Já, það væri rausnarlegt ef menn gerðu það sama fyrir venjulega Íslendinga sem skulda skatta, ef það væri bara þurrkað út af því að þeim hafi ekki tekist að borga þá. Það væri mjög rausnarlegt. Ég er hræddur um að hv. þm. Pétur H. Blöndal mundi þá rísa öndverður gegn því og tala um að verið væri að gefa mönnum gjafir sem stæðu ekki í skilum.
Ég vil líka velta upp þeirri spurningu, hæstv. forseti, sem kom fram í máli einhvers ræðumanns áðan, ég man ekki nákvæmlega hver það var en held að ég hafi rétt eftir efnislega að þetta mál væri efnahagsaðgerð í núverandi ástandi, í núverandi efnahagsástandi á Íslandi á stöðu fyrirtækja, ég man ekki nákvæmlega hvernig það var orðað, þetta væri sérstök efnahagsaðgerð til að laga stöðu fyrirtækjanna. (Gripið fram í: Lúðvík Bergvinsson.) Ég verð að viðurkenna að ég átta mig ekki á því hvert þessi rök eru sótt og hvernig menn setja þau upp. Ég hefði haldið að við ættum að reyna að framfylgja skattalögum okkar í hverju sem er og ef þau eru ekki nægilega góð að þessu leyti — að menn geti skotið sér endalaust undan því að greiða skatta af því sem þeir eiga að greiða skatt af — eigum við auðvitað að lagfæra skattalögin í þá veru að reyna að ná inn þeim gjöldum sem við teljum eðlilegt að fyrirtækin beri á hverjum tíma, alveg eins og við gerum gagnvart einstaklingum. Annað er óeðlilegt, hæstv. forseti, og mér finnst það engin rök í málinu að af því að einhver skattur innheimtist illa skuli bara hætt við hann í staðinn fyrir að reyna að lagfæra löggjöfina þannig að við tökum þá skatta sem við höfum ákveðið að taka og við teljum eðlilegt að séu greiddir hvort heldur af fyrirtækjum eða einstaklingum.
Hér hefur verið vikið að því að nauðsynlegt væri að lækka skatta til að koma í veg fyrir að fyrirtækin færu úr landi. Hvar skyldum við enda með þeirri stefnu? Mér er það ekki ljóst en ég þykist þó hafa einhverja hugmynd um að lengi sé hægt að finna lönd í veröldinni, svokallaðar skattaparadísir, sem ég held að menn geti ekki sett sig í stellingar við að keppa við. Við hljótum að horfa á þessi mál öðruvísi en að reyna að elta sérstakar skattaparadísir að þessu leyti. Ég er þeirrar skoðunar að þetta mál sé illa til fundið inni á Alþingi og því eigi helst að vísa frá en lágmark er þó að því sé frestað og það tekið til miklu betri skoðunar en hér hefur verið gert en ætlunin virðist vera að keyra það í gegn. Ég minni einnig á minnisblað ríkisskattstjóra þar sem eru mikil varnaðarorð gagnvart þeirri breytingu sem hér er verið að leggja til. Ég tel að hér sé verið að fara óeðlilega leið í skattamálum og legg til að málinu verði frestað.