tekjuskattur.
Frú forseti. Það hefur komið fram áður í umræðunni og það er prentað hér á þingskjali, framhaldsnefndaráliti meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar, að einn af aðstandendum málsins sem hlýtur að teljast, fulltrúi Samfylkingarinnar í hv. efnahags- og skattanefnd, Gunnar Svavarsson, formaður fjárlaganefndar, ritar undir nefndarálitið með fyrirvara. Nú hef ég ekki orðið þess var að hv. þingmaður hafi komið hér og gert grein fyrir þeim fyrirvara sem mér finnst eðlilegt og við eigum nokkra heimtingu á sem ræðum þetta mál og þar á meðal og ekki síst auðvitað við ábyrgðaraðila þess, talsmenn stjórnarflokkanna. Ég óska því eftir því að virðulegur forseti geri gangskör að því að gera hv. þingmanni ljóst að þessi umræða fer nú hér fram og að eftirspurn er eftir því að hv. þm. Gunnar Svavarsson, formaður fjárlaganefndar, komi og geri grein fyrir og útskýri fyrirvara sinn. Það getur ekki borið svo brátt að eða verið þvílík tímanauð í störfum hér að ekki megi gera hlé á umræðunni meðan þess er beðið að hv. þingmaður eigi þess kost að koma hingað (Forseti hringir.) og útlista fyrirvara sinn. Ég óska eftir því að forseti komi þessu til leiðar.