135. löggjafarþing — 103. fundur,  15. maí 2008.

umræða um Evrópumál.

[10:42]
Hlusta

Valgerður Sverrisdóttir (F):

Hæstv. forseti. Það eru tíðindi að gerast í íslenskri pólitík. Það hefur gerst nú á síðustu dögum að þingflokkur sjálfstæðismanna er í fundaherferð um landið. Einhverjir kalla það taugaveiklunarferð en látum það vera. [Hlátrasköll í þingsal.] Við skulum nú fara aðeins yfir það sem verið er að segja á þessum fundum. (Gripið fram í.) Það er óþarfi að fara á taugum strax, vil ég bara að segja við hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins.

Hvað er verið að segja á þessum fundum? Það er ekkert smáræði. Það er bókstaflega verið að segja það að fara eigi að skoða kosti og galla ESB og að meta eigi kosti og galla þess að gerast aðili að Evrópusambandinu. Þetta er náttúrlega stórfrétt því að það hefur ekki mátt tala um Evrópusambandið í Sjálfstæðisflokknum. [Hlátrasköll í þingsal.] Já, já, ég veit alveg að þið ætlið að hlæja að þessu en þetta er nú samt svona. Ég þekki það alveg af eigin raun. [Hlátrasköll í þingsal.] Forseti. Fæ ég ekki smáaukatíma?

Til viðbótar því sem formaðurinn sagði á Akureyri fyrir nokkrum dögum, þá segir varaformaðurinn ekkert smáræði í Kópavogi. Hún segir að Sjálfstæðisflokkurinn eigi að vera í forustu í umræðu um Evrópumál og hún segir að það eigi að kjósa um aðild að Evrópusambandinu á næsta kjörtímabili. Það þýðir að breyta þarf stjórnarskránni á þessu kjörtímabili. Þá spyr ég: Hvenær á að fara í þá vinnu? Ég veit að formaðurinn, Jón Kristjánsson, er í startholunum að hefja vinnuna hvenær sem hann (Gripið fram í.) fær skilaboð frá hæstv. ríkisstjórn.

Svo ætla ég að segja að lokum, hæstv. forseti, að miðstjórnarfundur Framsóknarflokksins hafði ekki lítil áhrif í þessu þjóðfélagi miðað við þetta. [Hlátrasköll í þingsal.]