sjúkratryggingar.
Herra forseti. Í hraðfluttri stuttri ræðu um þetta mikla frumvarp þar sem hæstv. ráðherra taldi upp í 16 liðum þær breytingar sem helstar væru í frumvarpinu, voru að hans mati aðeins örfáar þar sem um raunverulega breytingu var að ræða. Því sem gott er í íslenskri heilbrigðisþjónustu munum við þingmenn Vinstri grænna ekki amast við og að því verði ekki breytt með þessu frumvarpi. Við munum fagna því. Það sem við óttumst eru þær breytingar sem ráðherrann hefur boðað og þetta frumvarp sýnir okkur. Það er nöturlegt ef ekki á að vera hægt að kalla eftir eðlilegum umsögnum aðila og fá gesti á fund heilbrigðisnefndar til að fara yfir þetta stóra mál.
Ég vil staldra við 45. gr. sem fjallar um eftirlit með gæðum í heilbrigðisþjónustunni vegna þess að í heilbrigðisnefnd er núna verið að skoða samning flaggskips einkavæðingar í heilbrigðisþjónustunni, samninginn við Sóltún, og ég spyr hæstv. ráðherra hverju þau ákvæði sem þessu frumvarpi fylgja, hefðu breytt í þeim ágreiningi eða við úrlausn hans. Það er mjög mikilvægt að það komi fram því að það mál er með ólíkindum.
Það vekur einnig athygli mína, sem ég vil spyrja hæstv. ráðherra um, að á bls. 30 í greinargerð er vakin athygli á því að eftirlit með gæðum í sölusamningum heilbrigðisþjónustu, sem þar er fjallað um, í þeim tveimur löndum sem vísað er til sé ekki á hendi þess aðila sem sér um kaupin, þ.e. á sölu stofnunarinnar. Í 45. gr. frumvarpsins er hins vegar gert ráð fyrir að svo verði hér á landi.