sjúkratryggingar.
Hæstv. forseti. Fyrr á þessu ári var skipuð stjórn yfir þeirri stofnun sem við erum nú að ræða um og er ekki komin með lagagrundvöll.
Hér segir, væntanlega byggt á yfirlýsingu frá heilbrigðisráðuneytinu í einhverjum vefmiðlinum, með leyfi forseta:
„Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra hefur skipað fyrstu stjórn nýrrar sjúkratryggingastofnunar sem tekur að fullu til starfa í haust. Benedikt Jóhannesson framkvæmdastjóri verður formaður stjórnar sjúkratryggingastofnunar sem ætlað er að semja um og kaupa heilbrigðisþjónustu fyrir hönd heilbrigðisráðuneytisins. Stofnunin varð til með lögum sem tóku gildi um áramót.“
Það er alveg rétt. Sett voru lög sem heimiluðu hæstv. heilbrigðisráðherra að ráða stjórnina og að hún fengi heimild til að ráða framkvæmdastjóra, ef ég man rétt. Það var lagagrundvöllurinn sem við hér á Alþingi gagnrýndum. Hvers vegna? Vegna þess að við vildum fá hingað inn á borð frumvarp frá ríkisstjórninni um þessa stofnun þar sem við gætum tekist á um, eða orðið sammála um eftir atvikum, hvernig við vildum haga þessum málum. Um þetta urðu talsverðar deilur hér í þinginu og ég hef grun um að í stjórnarliðinu hafi leynst margir sem voru okkur sammála um að þessi vinnubrögð væru ekki til fyrirmyndar.
Hæstv. ráðherra, ef ég man rétt, sagði að Alþingi gæfist góður tími til að fara yfir þessi mál þegar frumvarp ríkisstjórnarinnar kæmi fram með vorinu, og nú er komið vor, 15. maí. Gert er ráð fyrir að ljúka þingi um næstu mánaðamót. Er hæstv. heilbrigðisráðherra, fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, í alvöru að tala um að þingið afgreiði þennan lagabálk fyrir vorið? Er mönnum virkilega alvara að bjóða þinginu og landsmönnum upp á slík vinnubrögð?
Okkur þótti mörgum heilbrigðisfrumvarpið, sem hæstv. ráðherra vísar til, og samþykkt var frá Alþingi í mars sl., of snöggsoðið. Við töldum æskilegt að það frumvarp fengi lengri tíma, en við urðum undan að láta og urðum reyndar fyrir miklum þrýstingi frá ýmsum aðilum sem töldu að í frumvarpinu væri það margt gott að við mættum ekki láta það sem illt væri tefja fyrir því. Þetta voru skilaboð sem við fengum víða að úr heilbrigðiskerfinu.
Nú kemur hæstv. ráðherra með helstu röksemd sína, að því er virðist, fyrir því að við hljótum að geta afgreitt þetta mál hratt og vel, að á þessum tíma höfum við léð samþykki okkar frumvarpinu sem ég var að vísa til, og hann vísar sérstaklega í VII. kafla þess frumvarps þar sem umdeildustu atriðin af okkar hálfu er að finna.
Hvernig skyldum við hafa greitt atkvæði þegar VII. kafli frumvarpsins kom til umfjöllunar? Þar er að finna greinar í heilbrigðislögum frá 23.–32. gr. Við greiðum t.d. atkvæði gegn lagaákvæði sem heimilar ráðherra að bjóða út rekstur heilbrigðisþjónustu og kaup á heilbrigðisþjónustu samkvæmt lögum þessum. Vinstri hreyfingin – grænt framboð var andvíg þessu.
Hitt er rétt að við greiddum atkvæði með ákvæði til bráðabirgða sem er að finna í 39. gr. þar sem kveðið er á um að starfrækja skuli stofnun undir yfirstjórn heilbrigðisráðherra sem hafi m.a. það hlutverk að annast kaupgreiðslur og samninga um heilbrigðisþjónustu, greinin er aðeins ítarlegri. Hér höfðum við fengið ábendingar og hvatningu frá Öryrkjabandalaginu m.a. sem vildi koma á nýskipan í þessum málum í sérstakri stofnun og það var hugsun sem við vorum fylgjandi, en þetta voru okkar takmarkanir og okkar skilmálar og skilyrði. Ef hlustað er á það sem sagt var hér á þinginu, það sem menn skrifuðu í blöðum og sögðu í útvarpi og á opinberum vettvangi er mjög ósanngjarnt að væna okkur um að vera ekki sjálfum okkur samkvæm í þessu máli. Ekki er hægt að nota það sem röksemd við þessa umræðu.
Mig langar, hæstv. forseti, af þessu tilefni, til að vitna orðrétt í atkvæðaskýringu sem ég gaf þegar þingið afgreiddi þessi lög. Ég sagði, með leyfi forseta:
„Við greiðum atkvæði um mikinn lagabálk sem hefur verið lengi í vinnslu. Það er sitthvað gott í lögunum en við hefðum talið heppilegra að þau hefðu fengið enn meiri umfjöllun. Við tölum um lagasmíð, grundvöll sem á að gilda til langs tíma. Heilbrigðisþjónustuna á að skipuleggja á grundvelli velferðarsjónarmiða en ekki viðskipta. Frumvarpið byggir að verulegu leyti á viðskiptahugsun. Það fjallar um kaupendur og seljendur, það fjallar um kaup og sölu. Að mínu mati þarf að hugsa langt fram í tímann og máta löggjöf af þessu tagi í heimi þar sem viðskiptaöfl ásælast sífellt stærri hlut í velferðarþjónustunni og nýta sér lagalegar skilgreiningar oft frammi fyrir dómstólum. Hér skipta alþjóðlegir samningar og skuldbindingar máli. Ég vísa í þessu sambandi í átökin sem hafa átt sér stað um mótun og síðan skilgreiningar í þjónustutilskipun Evrópusambandsins og þá ekki síður í fyrstu ákvæði GATT-samninganna en þar er velferðarþjónustan undanskilin markaðsskuldbindingum nema þegar hún er skipulögð á viðskiptagrunni, jafnvel þótt hið opinbera greiði fyrir þjónustuna. Við þurfum að hafa það í huga að þetta umhverfi er allt saman á hreyfingu og við þurfum að gæta að okkur og hugleiða hvert við viljum fara, hvort við ætlum að ýta þjónustunni út á markaðstorgið.“
Heimur á hreyfingu, umhverfi sem tekur örum breytingum. Það hefur vissulega gerst hér í þessum sal, við erum komin með nýja ríkisstjórn. Við minnumst þess þegar formaður Sjálfstæðisflokksins fagnaði því sérstaklega að vera laus við Framsókn, sem var hemill á villtustu markaðsvæðingardrauma íhaldsins, og kominn með Samfylkinguna upp í til sín. Hæstv. forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins talaði, ef ég man rétt, í mjög háttstemmdri ræðu í Valhöll í lok septembermánaðar. (RR: Varst þú þar?) — Nei, blaðamaður Morgunblaðsins var þar og skrifaði ágæta grein um ræðu hæstv. forsætisráðherra, formanns Sjálfstæðisflokksins, sem talaði um hin miklu tækifæri sem nú væru að opnast. Það er hæstv. ráðherra heilbrigðismála, Guðlaugur Þór Þórðarson, sem talar fyrir þessu frumvarpi, sem menn bundu þar vonir sínar við, og nú er slagurinn hafinn.
Heilar deildir eru boðnar út, nú síðast á Landakoti, og verið er að færa þessa þjónustu út á markaðstorgið. Okkur var kynnt ný lína, sölulína, hjá fyrirtæki sem búið hefur um sig í gömlu Heilsuverndarstöðinni og heitir nú Heilsuverndarstöðin ehf. og hún auglýsir 20% afslátt til gullkorthafa Kaupþings. Þetta eru þau nýju sjónarmið sem eru að ryðja sér til rúms.
Þegar Sjálfstæðisflokkurinn talar um að ríkið, hið opinbera, eigi að greiða fyrir alla heilbrigðisþjónustu vil ég minna á tvennt: Í fyrsta lagi hefur ekki alltaf verið hamrað á þessum sjónarmiðum af hálfu þess flokks. Í bæklingi sem hæstv. núv. forsætisráðherra og þáv. fjármálaráðherra gaf út 1998 er talað um að með einkavæðingu og einkaframkvæmd eigi að stefna að því að notandinn greiði sem mest. Síðan hefur Sjálfstæðisflokkurinn horfið frá þessari stefnu, alla vega í orði, og talar nú um að skattborgarinn eigi að greiða en við eigum ekki að skipta okkur af því eða gera okkur rellu út af því hver framkvæmi. Hugsunin er þar rökrétt, hljómar ekki illa, að þingið og pólitíkin eigi að hafa það hlutverk að ákvarða hvað eigi að gera, hve miklir fjármunir eigi að renna til viðkomandi starfsemi — sjá um að eftirlit sé í góðu lagi en ekki endilega skipta sér af framkvæmdinni, sú er hugsunin. Þetta er sú hugsun sem hefur líka verið boðuð í Bretlandi þar sem menn hafa verið að rífa niður heilbrigðisþjónustuna sem var sett á laggirnar með einni löggjöf árið 1948 í kjölfar stríðsins. Smám saman hafa Bretar verið að fikra sig út á markaðstorgið, hverfa frá þeirri hugsun að veita þjónustu á grundvelli velferðar sem er bundin landsvæði og yfir í það að skilgreina hana upp á nýtt, setja hana í bókhaldsbúning. Hvert viðvik skuli bókhaldsfært og síðan inn á sölutorgið með hana, það er hugsunin.
Í sjálfu sér hljómar þessi hugsun ekki illa, hún hljómar rökrétt og getur hljómað sannfærandi. Það hljómar t.d. ágætlega sannfærandi að einstaklingur geti valið að peningarnir fylgi honum og hann sé þá sjálfráður um hvert hann fer, hvert hann leitar, það er alveg rétt, þetta hljómar ekki illa. Reyndin hefur orðið sú í Bretlandi og þar sem menn hafa farið út á þessar brautir að þetta hefur leitt til aukinnar mismununar og að markaðshugsun er að víkja til hliðar hinni gömlu velferðarhugsjón. Ég tel mjög mikilvægt að fram fari mjög rækileg umræða um frumvarpið og um stefnuna í heilbrigðismálum. Það er mjög mikilvægt vegna þess að ekki einungis eru skoðanir skiptar, menn greinir á um skilgreiningar, menn greinir á um ýmsa þætti sem eru til umræðu í nefndum og starfshópum. Menn greinir t.d. á um það hvort fara eigi með heilbrigðisþjónustuna inn í auglýsingar. Varaformaður Samfylkingarinnar hefur flutt frumvarp þess efnis og ég hef spurt einn helsta gúrú Sjálfstæðisflokksins, talsmann flokksins í tryggingamálum, hv. þm. Pétur H. Blöndal, hvort hann telji eðlilegt að læknar geti auglýst viðskipti sín og berjist að hluta til á vettvangi auglýsinganna og markaðstorgsins og hann er því fylgjandi. Þetta er verkstjóri ríkisstjórnarinnar, annar tveggja verkstjóra, í nefnd sem fjallar um heilbrigðismálin og nýsköpun þar og endurskipulagningu. Það er þá fráhvarf frá þeirri hugsun sem ríkisstjórnin boðar um að ríkið eigi að borga allt og sjúklingurinn ekki neitt.
Þurfum við ekki að ræða þetta betur? Ætlum við að láta bjóða okkur að lagt sé fram frumvarp sem er rökstutt með því að allur þingheimur hafi samþykkt undirstöður þess í mars sl., og ég hef rakið hvernig það var, og síðan eigi að afgreiða málið fyrir vorið? Hvers konar vinnubrögð eru þetta? Ætlar ríkisstjórnin að temja sér að gera handarbakið að vinnuborði sínu í öllum málum?
Við vorum að samþykkja lög, þingið, meiri hlutinn, fyrir nokkrum mínútum sem ganga gegn ábendingum ríkisskattstjóraembættisins og látnar liggja milli hluta félagspólitískar athugasemdir sem koma frá verkalýðshreyfingu. Hvert málið á fætur öðru er með þessum hætti. Ég beini því vinsamlegast til ríkisstjórnarinnar og hæstv. ráðherra að efnt verði til vandaðrar umræðu og horfið frá því að reyna að hraða þessu (Forseti hringir.) máli eins og hæstv. ráðherra lýsti yfir hér fyrir stundu að hann hygðist beita sér fyrir.