sjúkratryggingar.
Hæstv. forseti. Ég held (Gripið fram í.) nú að við þurfum að gera hlé á þessari umræðu og taka sérstaklega fyrir þennan yfirgang formanns heilbrigðisnefndar. Upp á sitt eigið frumkvæði tekur hv. þingmaður, formaður nefndarinnar, ákvörðun um að senda málið til umsagnar áður en það kemur til nefndar (SF: Málið var tekið á dagskrá með afbrigðum.) og áður en það kemur á dagskrá.
Ég legg til, hæstv. forseti, að við gerum hlé á þessari umræðu og að formenn þingflokka komi saman því þetta eru fáheyrð vinnubrögð og við sættum okkur ekki við þau.
En varðandi efni andsvars hv. þingmanns þá vil ég segja að þegar hv. þingmaður talar um að við séum seint á ferðinni að þá vorum við sem betur fer ekki eins snemma á ferðinni og Nýsjálendingar sem eru búnir að rústa sína velferðarþjónustu og ekki eins snemma á ferðinni og Bretar. Við getum alla vega reynt að draga lærdóm af reynslu Breta varðandi kerfisbreytingar í heilbrigðisþjónustunni sem eru vægast sagt mjög umdeildar.
Iðulega er vitnað til Svíþjóðar. Þar er heilbrigðisþjónustan skipulögð á grundvelli léna sem eru rúmlega 20 talsins, ef ég man rétt, og miklar og vaxandi deilur eru í Svíþjóð um stefnumótun í heilbrigðisþjónustunni. Því er mjög misvísandi að tala um það sem eina heila mynd.
Varðandi læknaritarastörfin og úthýsingu þeirra þá ætla ég að vona að sem flestir læknaritarar fylgist með þessari umræðu því þetta var gert í óþökk (Forseti hringir.) læknaritara og eftir því sem ég hef fregnað þá er það rangt (Forseti hringir.) að útvistunin hafi snúið að þeim verkefnum sem höfðu hlaðist upp.
Að lokum, (Forseti hringir.) hæstv. forseti, af því að ég tafðist hérna áðan vil ég bara skjóta inn athugasemd um að það hefði þurft að bjóða (Forseti hringir.) út heila öldrunardeild á Landspítalanum vegna þess að það væri mannekla. (Forseti hringir.) Hvers vegna skyldi hún vera? Verður málið leyst auðveldlegar þegar þetta er komið í hendur (Gripið fram í.) á útboðsaðilum? Það held ég ekki. Þetta er spurning um fjármagn.