135. löggjafarþing — 103. fundur,  15. maí 2008.

sjúkratryggingar.

613. mál
[12:36]
Hlusta

Álfheiður Ingadóttir (Vg) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ég lýsi mig ekki reiðubúna til þess að vinna með hæstv. formanni heilbrigðisnefndar að framgangi þessa máls. Ég á sæti í heilbrigðisnefnd og mér finnst freklega á mér brotið, herra forseti. Mér finnst freklega á mér brotið með það að þetta frumvarp sem er boðað hér með fimm mánaða fyrirvara — það var til umræðu hér síðast 10. desember síðastliðinn — að því skuli hent inn í þingið, það skuli tekið á dagskrá með afbrigðum, að það eigi að keyra það í gegn, að það sé kynning á því á kvöldfundi á föstudegi og síðan eigi umsagnir að liggja fyrir á þriðjudegi til þess að nefndarmenn fái að líta yfir það.

Ég styð eindregið þá kröfu sem hér hefur komið fram frá formanni þingflokks Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs um að umsvifalaust verði gert hlé á þessum fundi og þessi vinnubrögð skoðuð því það dugir ekki að vísa í fordæmi einhvern tímann, einhvers staðar (Forseti hringir.) eins og hv. formaður nefndarinnar gerði.