135. löggjafarþing — 103. fundur,  15. maí 2008.

sjúkratryggingar.

613. mál
[12:47]
Hlusta

Siv Friðleifsdóttir (F) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Það er alveg ljóst að við í Framsóknarflokknum teljum að það sé verið að standa mjög ófaglega að þessu máli. Við hefðum ekki viljað að þetta yrði tekið fyrir með þessum hætti og hvað þá núna þegar við fréttum að hv. þm. Ásta Möller, formaður heilbrigðisnefndar, hefur upp á sitt einsdæmi talað við nefndasviðið. Nefndasviðið á ekki að vinna þetta mál, það er heilbrigðisnefndin sem á að vinna þetta mál. Ekki er rætt við neinn í heilbrigðisnefndinni, a.m.k. ekki við stjórnarandstöðuna, málið er sent til umsagnar og svo er sagt: Við verðum komin með umsagnirnar á þriðjudaginn, ef ég heyrði rétt í hv. þingmanni. Hvað þýðir það? Í dag er fimmtudagur. Umsagnaraðilar eiga að hafa föstudaginn, þ.e. morgundaginn, og mánudaginn. Þetta eru vinnudagarnir sem umsagnaraðilar eiga að hafa til að skila umsögnum um þetta mál. Þetta er fáránlegt. Þetta eru fáránleg vinnubrögð, þetta gengur ekki upp, virðulegi forseti. (Forseti hringir.) Og á sama tíma segir sama fólk sem fer með þetta mál að það vilji samstarf, samstarf um breytingar á þessu. (Forseti hringir.) Það er verið að traðka aftur á þingræðinu, virðulegi forseti.