135. löggjafarþing — 103. fundur,  15. maí 2008.

staða tollgæslu- og lögreglumála á Suðurnesjum.

[13:36]
Hlusta

dómsmálaráðherra (Björn Bjarnason) (S):

Herra forseti. Undir lok febrúar á þessu ári var ljóst að lögreglustjórinn á Suðurnesjum taldi sig ekki geta rekið embætti sitt innan fjárheimilda ársins 2008 eins og þær eru í fjárlögum. Munaði þar rúmum 200 millj. kr. Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu kom þetta í opna skjöldu þar sem fjárlagatillögur embættisins fyrir árið 2008 sýndu enga slíka fjárvöntun. Stóð ráðuneytið í raun frammi fyrir sambærilegu viðfangsefni og árið 2007 en þá var lögð fyrir það tillaga að rekstraráætlun embættisins með um 200 millj. kr. halla. Þá fól ráðuneytið nefnd sérfróðra manna að fara í saumana á rekstri og fjárumsýslu embættisins. Tókst að draga úr hallanum en hann varð þó um 800 millj. kr. í árslok. Nefndin taldi að bæta þyrfti rekstrarskilyrði embættisins og aðskilja bæri fjárhag einstakra verkþátta þess og fella þá a.m.k. fjárhagslega undir viðkomandi ráðuneyti, þ.e. að lögregla og landamæravarsla yrði hjá dóms- og kirkjumálaráðuneyti, tollamál hjá fjármálaráðuneyti og flugöryggismál hjá samgönguráðuneyti.

Ákvörðun ráðuneytisins um skiptingu embættisins byggist á sömu sjónarmiðum og nefndarinnar. Meginrökin fyrir þessari skiptingu felast í faglegri verkaskiptingu innan Stjórnarráðsins. Er eðlilegt að gagnvart þessu embætti eins og endranær beri hvert ráðuneyti ábyrgð á sínum verkþætti, bæði stjórnsýslulega og fjárhagslega. Núverandi skipan má rekja til dvalar varnarliðsins sem lauk í september 2006. Hún byggist hvorki á faglegum rökum um rekstur flugvalla né löggæslu eða landamæravörslu á flugvöllum.

Ráðuneytið hefur lagt til að verkskil innan embættisins verði 1. júlí 2008. Í bréfi, dagsettu 13. maí, tekur lögreglustjórinn á Suðurnesjum undir að miðað verði við þá dagsetningu við aðskilnað hinna ólíku verkþátta. Hvernig sem á málið er litið er óhjákvæmilegt að leiða lögreglustjóraembættið út úr árlegum fjárhagsvanda en hann veikir innviði þess meira en nokkuð annað. Ráðuneytið hefur lagt fyrir lögreglustjóra að embætti hans sé rekið innan fjárheimilda og gjöld umfram þær heimildir verði langt innan við 200 millj. kr. í lok þessa árs. Óþarft ætti að vera að tíunda fyrir þingmönnum að fjárlög ber að virða. Ríkisendurskoðun hefur auk þess ítrekað hvatt til strangs fjárlagaeftirlits ráðuneyta og aðhalds af forstöðumönnum ríkisstofnana.

Um skiptingu verkþátta innan Suðurnesjaembættisins var haft samráð við fjármálaráðuneyti og samgönguráðuneyti. Hvort ráðuneyti um sig ákveður hvernig það hagar framkvæmd verkefna á sínu sviði. Alþingi samþykkti nýlega breytingar á tollalögum, um stækkun tollumdæma. Þar er m.a. mælt fyrir um að tollstjórn, sem áður var í höndum sýslumanna í Stykkishólmi, Borgarnesi og á Akranesi, falli undir tollstjórann í Reykjavík. Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu fer ekki með tollamál. Það er því síður en svo einsdæmi að lögreglustjóri annist ekki tollstjórn. Skipan tollamála á Suðurnesjum eru í höndum fjármálaráðherra og Alþingis ef og þegar til lagabreytinga kemur en ríkisstjórnin hefur samþykkt þessa breytingu fyrir sitt leyti.

Í umræðum um stærð lögregluumdæma hef ég lýst þeirri skoðun að hvorki skuli haggað við skipan mála á höfuðborgarsvæðinu né Suðurnesjum við frekari stækkun. Forustumenn sveitarstjórna á Suðurnesjum og embættismenn dóms- og kirkjumálaráðuneytisins hafa rætt leiðir til að efla löggæslu í umdæminu. Er afar brýnt að þannig verði búið um hnúta að lögreglustjóri á Suðurnesjum geti einbeitt sér að því að efla löggæslu og landamæravörslu. Við framkvæmd skiptingar embættisins verður sérstaklega hugað að réttarstöðu starfsmanna. Ráðuneytið hefur lýst vilja sínum til að fá óháðan lögfræðing til að gæta hagsmuna þeirra. Um breytingar í opinberum rekstri gilda fyrirmæli í lögum og reglum og verður þeim að sjálfsögðu fylgt.