135. löggjafarþing — 103. fundur,  15. maí 2008.

staða tollgæslu- og lögreglumála á Suðurnesjum.

[13:55]
Hlusta

Árni Páll Árnason (Sf):

Virðulegi forseti. Sameining lögregluembættanna á höfuðborgarsvæðinu og stofnanir lögregluembættisins á Suðurnesjum eru til þess að gera nýafstaðnar. Við þær skipulagsbreytingar var almenningi í landinu gefið fyrirheit um að þær yrðu til að auka öryggi almennings og vægi almennrar löggæslu. Það er margt sem bendir til þess að fjárveitingar til embættis lögreglustjórans á Suðurnesjum séu ekki fullnægjandi miðað við þá þjónustu sem lagt var upp með að veitt yrði. Vandi embættisins sýnist því í hnotskurn vera sá að fjárveitingarnar dugi ekki til að halda uppi því þjónustustigi. Í því efni er auðvitað ábyrgð Alþingis mikil sem fer með fjárveitingavaldið og það er mikilvægt að við áttum okkur á því að í opinberri þjónustu, hvort sem það er í löggæslu eða öðrum þáttum, er ekki sífellt hægt að skrúfa niður þjónustustig til að mæta breytingum á fjárveitingum. Við verðum að tryggja öryggi. Fólk finnur fyrir auknu óöryggi á götum og í sínu nærumhverfi nú. Því er eðlilegt að við horfum til að efla og styrkja almenna löggæslu. Ég held því að við eigum frekar að horfa til þess að flytja verkþætti frá ríkislögreglustjóraembættinu til hinna kröftugu lögreglustjóra í Reykjavík og á Suðurnesjum. Með þeim hætti mundum við gefa þeim færi á því að nýta þau samlegðaráhrif sem þannig kunna að verða til ef sá mannskapur og sú fjárfesting og sú þekking sem þar eru fyrir hendi gæti nýst þeim til að styrkja löggæslu í nærumhverfi fólksins á þessum þéttbýlu stöðum á suðvesturhorninu.