sjúkratryggingar.
Frú forseti. Spurningin sem lögð var fyrir menn í þessari könnun var mjög skýr.
Hún hljóðaði svo, með leyfi forseta:
Hvort finnst þér að eftirfarandi starfsemi eigi að vera rekin (starfrækt) af hinu opinbera (ríki, sveitarfélögum) eða einkaaðilum?
Ég held að það sé algjörlega óþarft fyrir hv. þm. Ástu Möller að gera lítið úr orðaskilningi fólks sem svaraði þessari spurningu og var á aldrinum 17–85 ára. Ég held að fólk hafi alveg vitað hverju það var að svara. Niðurstöðurnar eru sláandi, 80,7% vilja að sjúkrahús séu fyrst og fremst rekin af hinu opinbera, 76% vilja að heilsugæslustöðvar séu það, hjúkrunarheimili 60%, heimahjúkrun 60%, lýðheilsustarfsemi 64% og tannlækningar barna 63,3%.
Þá erum við kannski komin að einkarekstrinum, þá erum við komin að því hvað það getur þýtt í raun þegar hið tvöfalda kerfi einkaframkvæmdarinnar og hins opinbera kerfis er upp komið. Þá er niðurstaðan sú að fólk hefur einfaldlega ekki efni á því að nota þjónustu jafnvel þó að hún sé mjög brýn og nauðsynleg. Meira að segja 44% svarenda töldu að hið opinbera ætti fyrst og fremst að greiða eða kosta tannlækningar fullorðinna.
Hv. þm. Ásta Möller taldi að fólk hefði ekki skilið þessa spurningu. Þá er náttúrlega ekki nema von að hv. þingmaður hafi ekki viljað svara seinni hluta spurningarinnar, sem sé hvort ríkisstjórnin væri að fara fram með vilja þjóðarinnar eða gegn honum.