sjúkratryggingar.
Hæstv. forseti. Margt hefur verið sagt í dag um það frumvarp sem við fjöllum nú um og spurning hve mikið við getum tekið inn í umræðuna á þessu stigi við 1. umr. málsins. Það er mikilvægt að fá góða kynningu á málinu frá þeim sem hafa samið frumvarpið og kynnast því hvernig þeir sjá fyrir sér útfærsluna á þessu frumvarpi um sjúkratryggingar.
Eins og við öll vitum hefur það verið hávær krafa lífeyrisþega, þ.e. öryrkja og ellilífeyrisþega, um langan tíma að skipta upp Tryggingastofnun ríkisins, þ.e. hafa lífeyrisgreiðslur alveg sér. Þessi þrýstingur, þessi réttmæta krafa hefur þyngst með árunum og kom m.a. inn í samningaferlið sem fyrrverandi ríkisstjórn hóf með lífeyrisþegum, sérstaklega ellilífeyrisþegum, á síðasta kjörtímabili þar sem leitað var samráðs og lagðar fram hugmyndir til að bæta kjör og stöðu lífeyrisþega og þar var m.a. ítrekuð sú krafa að umsýsla lífeyrisins væri alveg sér. Undir þetta tókum við og höfum gert það sem þýðir að sjúkratryggingar verða þá þar fyrir utan og auðvitað skiptir máli hvernig haldið er á þeim hluta, þessu framkvæmdastigi heilbrigðisþjónustunnar, nú erum við komin með lífeyrisgreiðslurnar í Tryggingastofnun og auðvitað skiptir máli hvernig þetta þróast svo áfram.
Ég efast um að búið sé að leysa alla hnúta og rekja upp þetta þétta samspil sem var hjá Tryggingastofnun ríkisins þegar sú stofnun fór með lífeyrisgreiðslurnar og sjúkratryggingarnar og hafði einnig löngum innan sinna vébanda hlutverk samningsaðila sem fór frá Tryggingastofnun fyrir nokkru síðan og hefur verið á ábyrgð heilbrigðisráðherra. Þetta þétta samspil í Tryggingastofnuninni þarf auðvitað að losa um og það skiptir miklu máli hvernig það er gert, hvað verður eftir hjá Tryggingastofnun og hvað fer inn í sjúkratryggingarnar. Ég veit ekki hvort menn hafa séð þennan veg alveg til enda. Ég rek t.d. augun í það, hæstv. forseti, að í þessu frumvarpi um sjúkratryggingar er ákvæði um hjálpartæki og ég er ekki sannfærð um að hjálpartækin séu á réttum stað þegar þau lenda í sjúkratryggingaflokknum. Horfum við ekki á hjálpartæki sem hluta af endurhæfingu, sem hluta af því sem stuðlar að því að fólk geti lifað sjálfstæðu og eðlilegu lífi fyrir utan hina hefðbundnu heilbrigðisþjónustu? Það eru hlutir af þessum toga sem ég hefði viljað að við gætum farið vel í. Þetta er bara eitt lítið dæmi um hina vandmeðförnu uppstokkun á þeirri stóru og miklu stofnun sem Tryggingastofnun var og verður áfram.
Þegar lesið er yfir frumvarpið kannast maður auðvitað við flest af því sem þar er, bæði úr umræðu og eins það sem tekið er úr öðrum lögum og yfirfært er í þetta nýja frumvarp. Þetta er því ekki allt nýtt. En hér eru líka komnar inn nýjar greinar eins og greinin um gjaldtöku, hvaða þjónusta það er sem taka má gjald fyrir. Þetta er betur skilgreint en það er í dag en það er ekki þar með sagt að ég sé alveg sátt við og sammála því að taka eigi eins mikið gjald og kveðið er á um í frumvarpinu og eins og gert er í dag. Ég hefði líka viljað heyra frá fólki og sérstaklega notendum þessarar þjónustu sem þurfa mikið á henni að halda, hvort með þessu frumvarpi séum við í raun og veru að vernda gjaldtöku sem hefur smátt og smátt verið að þróast í það að vera eins og hún er í dag, að taka gjald af öllum rannsóknum, taka gjald á göngudeildum sjúkrahúsanna. Ætti það ekki frekar að vera hluti af starfsemi sjúkrahúsanna að hafa þjónustuna á göngudeild en ekki í formi innlagna og ná fram sparnaði þar? Ættum við ekki frekar að flýta rafrænni sjúkraskrá, flýta samtengingu þannig að ekki sé verið að eyða fjármunum í endurteknar rannsóknir, meðferð, lyf og annað sem er eingöngu vegna þess að ekki er tenging á milli stofnana? Ef við náum fram með frumvarpinu möguleikum á að halda útgjaldaliðum niðri, er það þá endilega besta leiðin að tína til allar þessar heimildir til gjaldtöku? Getum við ekki náð niður kostnaði með því að fækka þeim aðgerðum og rannsóknum sem gerðar eru?
Þá vaknar líka önnur spurning: Spörum við með því að hafa gjaldtöku hjá heilsugæslunni? Er hugsanlegt að ná niður kostnaði með því að hafa heilsugæsluna gjaldfrjálsa þannig að það verði hvatinn til að nota þá þjónustu og grunnþjónustuna? Náum við niður kostnaði með því að byggja upp heilsugæsluna á höfuðborgarsvæðinu þannig að fólk hafi möguleika á að fara á heilsugæslustöð? Hvert eigum við að beina fólki frá þeim sjálftökurétti sem það hefur í dag, sem er að velja sér þann sérfræðing sem það telur sjálft að það eigi að fara til? Ef því er illt í eyranu fer það til eyrnasérfræðings, ef því er illt í puttanum fer það til einhvers annars o.s.frv. og enginn heldur utan um þetta því að tengingin er engin þarna á milli. Þjónustan, hversu góð sem hún er hjá þeim sérfræðingum sem viðkomandi sjúklingur leitar til, er dýrari, sérfræðiþjónustan er dýrari og það er spurning hvort hún veitir, þegar upp er staðið, þessum einstaklingum betri þjónustu af því að það vantar allar tengingar inn í heildarsýnina. Er hugsanlegt að þessir sjúklingar hefðu frekar farið á heilsugæsluna og nýtt sér þá þjónustu sem þar er, grunnþjónustu, ef þar væri lægri eða engin gjaldtaka? Nú er gjaldtaka á heilsugæslustöðvum orðin töluverð ef rannsóknir, röntgen og annað slíkt er talið með. Það má líka horfa á stýringu.
Þegar við förum í gegnum frumvarpið þá er samningsumboðið hjá þessari stofnun og henni ber að fara að þeim markmiðum sem viðkomandi heilbrigðisráðherra hefur sett eða viðkomandi ríkisstjórn og það er auðvitað alveg opið hérna hvar áherslan mun liggja. Nú hefur núverandi ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar sett sér það markmið að fara út úr þeim ramma sem við höfum í dag og auka hlut einkareksturs umfram það sem verið hefur. Það er rétt að umtalsverður hluti af rekstrinum í dag er ekki bara í einkarekstri heldur líka í sameignarrekstri eða sf. — þetta er ekki allt ehf. eða hf. heldur er líka stór hluti hjúkrunarheimila og dvalarheimila sem ekki er í opinberum rekstri í sameignarrekstri. Ég geri stóran greinarmun á því hvort heilbrigðisþjónusta er rekin í hagnaðarskyni til að ná arði út úr þjónustunni, að nota sjúkleika fólks, öldrun eða bæklun til að hafa af því ábatasama atvinnu, eða hvort rekin er þjónusta þar sem hugsanlegur ágóði fer til að bæta þjónustuna, borga fólki laun og borga þann rekstur sem til þarf og verði einhver afgangur fari hann í að byggja upp þjónustuna. Ég geri mikinn greinarmun á því hvort reynt er að mjólka út úr rekstrinum í eigin hagnaðarskyni, hvort þetta eru orðin hrein viðskipti eða hvort þjónustan er í fyrirrúmi. Að þessu sögðu og ef stefna ríkisstjórnarinnar er þessi, þá hefur maður ákveðinn fyrirvara á þessum greinum, um möguleikana á útboði, á frekari einkarekstri ásamt slíku.
Hér hafa verið nefndir tveir atburðir bara frá síðustu viku og nú í vor sem má vísa til einkareksturs sem hefur verið hampað og aðeins haldið til hliðar. Sá fyrri var útboð á öldrunardeild á Landakoti og sagt að það væri fínt að deildinni væri lokað og með því að bjóða hana út fengju 18 sjúklingar þjónustu. Gleymist ekki að skoða hvers vegna þessari deild var lokað? Var það ekki vegna þess að stofnunin hafði ekki haft tækifæri til eða möguleika á að manna deildina? Fjárhagsrammi stofnunarinnar er svo þröngur að ekki var hægt að greiða þau laun að hægt væri að halda í fólk og til að manna þessa deild varð að fá starfsfólk af öðrum deildum til að hlaupa í skarðið sem vann þá yfirvinnu og auðvitað varð reksturinn dýrari. Útboðið var hærra en viðkomandi stofnun, Landspítalanum, var gert að reka sína deild á. Er þetta þá sparnaður? Nei, segi ég, sparnaðurinn hefði auðvitað verið að halda samfellu í þjónustunni og standa þannig að rekstri stofnunarinnar að hún hefði möguleika á að ráða fólk og halda þjónustunni gangandi. Það er hægt að mola þjónustuna niður og segja: Útboðið er fínt, það bjargar þessum 18 einstaklingum. En það hefði verið hægt að halda þjónustunni í samfellu þótt ekki hefði verið gert annað en að stofnunin fengi sömu greiðslu og útboðið hljóðaði upp á.
Síðara dæmið er Sóltún sem veitir mjög góða þjónustu en er rekið sem einkarekstur með ágóða í huga sem fer þá ekki inn í stofnunina heldur til eigenda, rekstraraðila. Þar er byggt á því að fjármagn eigi að fylgja sjúklingi samkvæmt svokölluðu RAI-mati og nú stendur allt fast og ágreiningur er á milli aðila um túlkun á því hvernig greiða eigi samkvæmt RAI-matinu. Er um ofgreiðslu að ræða eða vangreiðslu eða hvernig á að nota þetta RAI-mat?
Hæstv. forseti. Ég vil þá spyrja, þar sem einungis eru nokkrar sekúndur eftir af ræðutíma mínum, ef við eigum að horfa á þetta frumvarp til laga og breytingar með þeim gleraugum að við séum að koma á betri rekstri og hagkvæmni og þar á að vera eftirlit og gæðaeftirlit: Erum við þá ekki að fara út í umgjörð og rekstur sem verður undir miklu eftirliti og er þá ekki rétt að horfa á RAI-málið með það að leiðarljósi og skoða hvort þetta sé það kerfi sem við viljum vinna eftir? Á stór hluti hjúkrunarfræðinga bara að vinna við skráningu til að uppfylla þetta RAI-mat? (Forseti hringir.) Þarf svona stórt eftirlitsbatterí til að fylgja þessu eftir og skoða hvort greitt sé samkvæmt þessu mati? Erum við ekki komin út fyrir þann ramma sem við þurfum að búa til? (Forseti hringir.) Ég vil, hæstv. forseti, að við skoðum þetta mál og vinnum það þannig að allir verði sáttir þegar upp er staðið.