sjúkratryggingar.
Hæstv. forseti. Ég hef ekki haldið fram mikilvægi þess að taka upp blandað greiðslukerfi eða haldið ræður um það en ég hef alltaf verið jákvæð gagnvart hugmyndinni út frá þeirri vitneskju sem ég hef um fjárhagsstöðu flestra heilbrigðisstofnana en eins og staðið hefur verið að fjárlögum undanfarin ár þá gengur þetta ekki svona, þannig að ég hef viljað skoða þennan möguleika vel. Samkvæmt nýjustu upplýsingum sem við höfum fengið um RAI-matið og hversu mikil vinna liggur í því þá vil ég hafa einhvern fyrirvara á því hvort þetta sé rétt leið.
Hér hefur verið vísað til Bretlands, bresks kerfis og sænsks kerfis, en Bretar hafa gengið í gegnum töluverðar sviptingar, heilbrigðisþjónusta þeirra hefur í raun og veru tekið kollhnís og greiðsluþátttaka sjúklinga hefur aukist og ekki viljum við fara þá leið. Ég harma að þingsályktunartillaga okkar Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs um rannsókn á áhrifum markaðsvæðingar samfélagsþjónustunnar skuli ekki hafa fengið fullnægjandi afgreiðslu og vinnslu á þinginu þannig að við hefðum möguleika á að skoða það nánar og fara faglega í þetta. Er verið að breyta breytinganna vegna eða viljum við breyta vegna þess að við sjáum að það eru möguleikar á bættri þjónustu með annars konar greiðslufyrirkomulagi af hálfu ríkisins eða samningagerð af hálfu ríkisins? Eða viljum við læra af mistökunum og bæta og styrkja það sem við höfum í dag (Forseti hringir.) og standa betur að fjárlagagerðinni en gert hefur verið?