135. löggjafarþing — 103. fundur,  15. maí 2008.

sjúkratryggingar.

613. mál
[17:49]
Hlusta

Ögmundur Jónasson (Vg):

Hæstv. forseti. Þetta er síðari ræða mín um þetta stjórnarfrumvarp og hef ég aðeins fimm mínútur til þess að ræða þetta mikilvæga frumvarp, örlagaríka, gæti orðið. Það er athyglisvert að fylgjast með umræðunni hér í dag. Annars vegar er stillt upp kerfinu eins og það er, fjársveltu kerfi, og hins vegar er stillt upp kerfi með þeim breytingum sem ríkisstjórnin sér fyrir sér, en þar eru nógir peningar.

Hv. þm. Árni Páll Árnason, talsmaður Samfylkingarinnar í þessari umræðu, talar um að losa verði kverkatak fjárveitingavaldsins á heilbrigðiskerfinu. Við reyndum að losa um þetta kverkatak pínulítið við afgreiðslu fjárlaga núna fyrir áramótin. Þá var sýnt að Landspítalinn, svo dæmi sé tekið, gæti ekki sinnt þeim verkefnum sem væru á hans könnu á þessu ári með óbreyttum fjárveitingum. Okkur tókst ekki að losa um þetta kverkatak. En nú sjá menn það fyrir sér greinilega að með þessum kerfisbreytingum sem eru boðaðar verði skyndilega til meiri fjármunir. Þetta held ég að sé röng hugsun.

Síðan er hitt að menn séu hér að boða einhverja nýja tíma. Staðreyndin er sú að sá grunnur sem velferðarkerfi Norðurlandanna, Bretlands og þeirra ríkja sem við iðulega berum okkur saman við er ekkert ýkja gamall. The National Health Service í Bretlandi var sett á laggirnar með löggjöf árið 1948. Það var sama ár og ég fæddist og er ég nú ekki háaldraður maður. Nú hafa menn verið að breyta þessu kerfi með lögum, 20, 30 lagasetningum og alltaf hefur formúlan verið sú sama, sú sem við höfum heyrt hér frá Sjálfstæðisflokknum og því miður talsmönnum Samfylkingarinnar líka við þessa umræðu, að í reynd væri ekki verið að breyta neinu, sjúklingar mundu ekki finna fyrir neinni breytingu. En skyndilega stöndum við uppi með kerfi sem er farið að mismuna fólki, sem hefur minni fjármuni handa í milli og byggir á annarri hugsun, viðskiptahugsun, og það var það sem hv. þm. Árni Páll Árnason sagði, þ.e. að hér væri verið að framfylgja loforðum í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar um að innleiða kostnaðargreiningu — held ég að hann hafi sagt — kostnaðargreiningu í heilbrigðiskerfinu.

Eins og ég sagði í fyrri ræðu minni þá er það nú svo að þetta hljómar ágætlega sannfærandi eins og mörg kerfi gera þegar menn halda sig bara við teoríuna. Mörgum þótti Sovétríkin vera skynsamlegt kerfi. Sovétríkin hrundu. Kerfið gekk ekki upp þegar það var sett í framkvæmd. Gæti nú verið að þessir miklu kerfissmiðir sem standa að þessum breytingum af hálfu ríkisstjórnarinnar gætu verið að brenna sig á einhvern hátt líka? Við erum að hvetja til þess að skoða reynslu annarra þjóða.

Hljómar það ekki vel að kostnaðargreina hvert viðvik, að peningarnir fylgi sjúklingnum? Jú, það er margt gott við þá hugsun. En ágætur læknir benti mér á eitt lítið dæmi: Þú gerir slíka samninga við ríkisvaldið um að fá greitt fyrir þessi og hin viðvikin. En ef þeir sem leita til þín sem læknis eða heilbrigðisstofnanirnar komast að þeirri niðurstöðu að það sé ekkert að þér, það sé bara allt í góðu lagi með þig, gæti verið að þá reyndist vera til staðar tilhneiging í kerfinu að skrifa pínulítið um of? Það er þetta sem ég á við, að kerfi sem hljóma óskaplega skynsamlega og vel ganga ekki alltaf upp í veruleikanum.

Við Samfylkinguna vil ég segja þetta: Gæti verið að hún ætti að fletta pínulítið upp í eigin sögu? Ég nefni til dæmis grein eftir ágætan fræðimann, fyrrum ráðherra, Gylfa Þ. Gíslason. (Forseti hringir.) Hún er orðin nokkuð gömul sú grein, var skrifuð árið 1943 í hið merka tímarit Helgafell (Forseti hringir.) um þann grunn sem Bretar reistu sitt heilbrigðiskerfi á. Þar talaði maður sem talaði (Forseti hringir.) ekki sama tungumál og hv. þm. Árni Páll Árnason eða varaformaður Samfylkingarinnar — ég biðst afsökunar á þessari lengingu (Forseti hringir.) — Ágúst Ólafur Ágústsson.