135. löggjafarþing — 103. fundur,  15. maí 2008.

sjúkratryggingar.

613. mál
[17:54]
Hlusta

Árni Páll Árnason (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil upplýsa hv. þm. Ögmund Jónasson um að sú stefna sem er fram borin í þessu frumvarpi byggir á kosningastefnu Samfylkingarinnar. Sú stefna byggir á því markmiði sem hefur verið óbreytt markmið íslenskra jafnaðarmanna allt frá því fyrir seinni heimsstyrjöld, að heilbrigðisþjónusta eigi að vera aðgengileg öllum óháð efnahag og að þar eigi ekki að mismuna fólki. Þess vegna eru skrifaðar inn í þetta frumvarp í fyrsta skipti hömlur við því að hægt sé að mismuna fólki að þessu leyti og það er skrifað inn í fyrsta skipti að það sé bannað að borga sig fram fyrir í biðröð. Mér finnst því að hv. þingmaður eigi að fjalla aðeins meira um efni þessa máls og aðeins minna um það sem hann heldur að standi í frumvarpinu.

Hv. þingmaður benti á að auðvitað gæti kerfi sem umbunaði mönnum fyrir ávísanir eða fyrir læknismeðferðir leitt til oflækninga. Auðvitað er það alveg ljóst. Ég bendi bara hv. þingmanni á að lesa frumvarpið og ummæli í greinargerðinni, til dæmis bæði um 46. gr. og 48. gr. Það er gert ráð fyrir því í þessu frumvarpi að þarna sé búið til greiðslukerfi sem sé síðan þróað og þroskað og hvetji ekki til oflækninga. Menn eru ekki að leitast við að búa hér til kerfi oflækninga. Staðreyndin er sú að við veitum meira fé til heilbrigðismála en eðlilegt er út frá aldri þjóðarinnar þannig að kostnaður okkar er hlutfallslega meiri en annarra OECD-ríkja. Ég held að óhjákvæmilegt sé að við reynum að horfa á kostnað veittrar þjónustu og árangur af henni. Þar er hins vegar Vinstri hreyfingin – grænt framboð úti um víðan völl. Hv. þm. Ögmundur Jónasson getur hugsað sér kostnaðargreiningu, hv. þm. Þuríður Backman sömuleiðis, en hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon talar hér niður hugmyndir um kostnaðargreiningu af miklum móð og (Forseti hringir.) líkir því við lélega færibandavinnu. Það er því ekki alveg ljóst (Forseti hringir.) hvaðan Vinstri hreyfingin – grænt framboð er að koma eða hvert hún er að fara í þessari umræðu.