uppbót á eftirlaun.
Já. Við verðum sjálfsagt að lifa með það eins og stundum áður að vera ósammála, ég og hv. þingmaður. En ég tel að þetta skjóti ekki skökku við þar sem við erum hér að greiða uppbót á lífeyrisgreiðslur eða lífeyrisgreiðslur til þeirra sem ekki eiga rétt annars staðar og koma þeim inn í þetta kerfi. Þau atriði sem hv. þingmaður nefndi áðan eru annars eðlis en hér er um að ræða.
Varðandi það að fjármagnstekjur dragist frá þessu er um það að ræða að þetta er fyrir þá aðila sem eru komnir á eftirlaun og eru eða ættu að vera farnir að taka greiðslur úr lífeyrissjóðum. Ég held að það væri alls ekki réttlátt að þeir aðilar sem ekki hafa greitt í lífeyrissjóð en ráðstafað þeim fjármunum sem þeir annars hefðu átt að greiða í þann sjóð í annars konar fjárfestingar og hafa þá af þeim tekjur, að þeir væru að fá þetta líka. Þá værum við ekki að ná þeim tilgangi sem frumvarpinu er ætlað að ná. En þeir sem ekki hafa greitt í lífeyrissjóð og hafa kannski ráðstafað því annað, í fjárfestingar sem síðan hafa farið illa og eiga þá hvorki rétt né eitthvað annað til þess að lifa af, fá auðvitað úr þessu á sama hátt og aðrir.