135. löggjafarþing — 104. fundur,  21. maí 2008.

niðurstaða nefndar um skattlagningu eldsneytis.

[14:03]
Hlusta

Kolbrún Halldórsdóttir (Vg):

Frú forseti. Ég er á svipuðu spori og hv. þm. Valgerður Sverrisdóttir var áðan. Mig langar til að beina fyrirspurn til hæstv. fjármálaráðherra um störf þeirrar nefndar sem nefnd var áðan og hefur verið starfandi nú í meira en ár og átti að fjalla um tillögur um skattlagningu bíla og eldsneytis. Markmiðið með starfi þessar nefndar var meðal annars það að draga úr orkunotkun, minnka útblástur koltvíoxíðs og auka notkun innlendra orkugjafa. Allt eru þetta mjög mikilvæg verkefni og hluti af stóru verkefni ríkisstjórnarinnar, að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Ég leyfi mér að fullyrða hér að ljóst er að ríkisstjórnin á í talsverðum erfiðleikum við að koma því verkefni í höfn.

Tvær sérfræðinganefndir sem settar hafa verið á laggirnar af hæstv. umhverfisráðherra, annars vegar hagfræðinganefnd og hins vegar vísindanefnd áttu að skila niðurstöðum, að minnsta kosti önnur ef ekki báðar, í apríl. Það er búið að fresta þeim niðurstöðum þannig að ljóst er að þetta þing á eftir að fara heim áður en nokkrar tillögur líta dagsins ljós hvað varðar stefnumörkun þessarar ríkisstjórnar í loftslagsmálunum.

Nú er þessi nefnd sem nefnd var áðan varðandi skattlagningu á eldsneyti og ökutæki á verksviði hæstv. fjármálaráðherra. Eftir því sem ég best veit átti hún að skila af sér í febrúar, mun kannski hafa gert það. En það er eðlilegt að spurt sé: Hvað líður niðurstöðum þessarar nefndar? Hvenær fáum við að sjá þær og hvers er að vænta í þeim efnum?