samræmd neyðarsvörun.
Frú forseti. Hér skiptir auðvitað máli að farið sé eftir því hvernig standa á að samningu lagafrumvarpa og að það samkomulag sem ríkið hefur gert sé virt. Það þýðir ekki endilega að einhver tiltekin frumvörp fái einhverja aðra mynd eða yrðu hugsanlega ekki afgreidd. Tilgangurinn er auðvitað sá að þessar upplýsingar liggi fyrir, að þingheimur, Alþingi, viti hvaða fjárhagslegar skuldbindingar það er að leggja á sveitarfélög í hverju einstöku máli sem það er að afgreiða og varða sveitarfélögin að verulegu eða öllu leyti. Það er auðvitað tilgangurinn með þessu samkomulagi og að þær upplýsingar liggi fyrir í umræðunni um hin fjárhagslegu samskipti ríkis og sveitarfélaga sem fara fram á öðrum vettvangi og í tengslum við umræðu um fjárlög, fjáraukalög o.s.frv. Best er að þær liggi fyrir sem fylgiskjal með frumvarpinu þegar það er lagt fram en að öðrum kosti ætti að gera þá kröfu að þær upplýsingar séu kallaðar fram í vinnunni í þinginu og þær komi t.d. fram í nefndaráliti frá nefndinni, að kallað hafi verið eftir þessum upplýsingum, þær liggi fyrir og svona sé það í pottinn búið að þetta muni kosta sveitarfélögin svo og svo miklar upphæðir. Það liggur þá fyrir og sveitarfélögin geta svo reynt að sækja það í samningum við ríkið um fjárhagsleg samskipti þeirra eða nefndin mælt með því að tekið sé tillit til þess á einhvern hátt eða ríkisvaldið hvatt til þess að semja við sveitarfélögin um það hvernig mæta eigi þessum kostnaði. Það er það sem ég er að gagnrýna í þessu tilfelli, ekki endilega að þær skyldur sem þetta frumvarp leggur á sveitarfélögin verði ekki til staðar heldur gagnrýni ég málsmeðferðina, málatilbúnaðinn og að þetta eru að mínu mati ekki vönduð vinnubrögð og alls ekki í samræmi við það sem ríkið hefur sagst ætla að gera og skrifað undir samkomulag við sveitarfélögin um að það muni gera.