135. löggjafarþing — 106. fundur,  22. maí 2008.

umfjöllun félags- og tryggingamálanefndar um skýrslu Ríkisendurskoðunar.

[10:31]
Hlusta

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti vill tilkynna að með bréfi, dagsettu 13. maí 2008, hefur forseti óskað eftir því við félags- og tryggingamálanefnd að hún fjalli um skýrslu Ríkisendurskoðunar um stjórnsýsluúttekt á Vinnumálastofnun í samræmi við reglur um þinglega meðferð skýrslna Ríkisendurskoðunar sem forsætisnefnd samþykkti 12. febr. sl.