leikskólar.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðu hennar. Ég hefði samt haldið að hv. þingmaður ætti innstæðu fyrir lengri ræðu, þ.e. að hún nýtti allan þann stutta ræðutíma, sem orðinn er í 2. umr., um jafnviðamikið mál sem ég veit að hún hefur jafnmiklar skoðanir á.
Mig langar að spyrja hv. þingmann út í nokkur atriði í breytingartillögum mínum, þar eru atriði sem ég hefði haldið að við hefðum kannski getað náð sátt um hefðum við haft aðeins lengri tíma til að vinna málið í nefndinni. Ég vil enn reyna að trúa á hið góða í manneskjunni, líka hér í þingsalnum, að við gætum kannski náð niðurstöðu um það að einhver af þeim breytingartillögum sem ég legg til gætu farið í gegn. Mig langar að nefna þrjú atriði.
Getur hv. þingmaður staðið með mér í því að reyna að koma inn ákvæði um það að inn í 2. gr., þ.e. markmiðsgreinina, verði fléttað ábendingu frá Amnesty International eða Amnesty á Íslandi um að virðing fyrir mannréttindum verði hluti af því sem skilgreint er í greininni sem eitt af meginmarkmiðum uppeldis og kennslu í leikskólum?
Í öðru lagi langar mig að spyrja hv. þingmann, af því að hún er sérstakur áhugamaður um réttindi þeirra sem nota táknmál sem móðurmál: Telur hún ekki rétt að við breytum 9. gr. þannig að tryggt sé að ef í hlut eiga foreldrar sem tala ekki íslensku eða nota táknmál skuli það vera óyggjandi að skólinn skuli tryggja þeim túlkun á upplýsingum sem nauðsynlegar eru vegna samskipta foreldra og skóla?
Í þriðja lagi: Telur hún ekki hægt að leiða í lög eða ná samstöðu um að félög sem fái heimild til að reka einkarekna leikskóla megi aldrei vera rekin í hagnaðarskyni?