leikskólar.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Ragnheiði Ríkharðsdóttur fyrir hennar ræðu sem mér fannst ágæt og til marks um það samstarf og samvinnu sem átti sér stað innan nefndarinnar.
Mig langaði samt aðeins að taka til máls út af ummælunum um gjaldfrjálsan leikskóla en ég skýrði áðan frá skýrri stefnu okkar framsóknarmann um að miða ætti að því. Hv. þingmaður orðaði þetta eitthvað á þá leið að hún vildi að sveitarstjórnarstigið ákvæði slíkt sjálft og að þar færi fram umræða. Nú tel ég að sú umræða hljóti að færast í aukana vegna þess að við erum í rauninni að gera leikskólastigið að fyrsta skólastiginu sem það var kannski fyrir en kennsluþátturinn er orðinn mun meiri og samfellan meiri. Ég velti því þá fyrir mér af því að við erum líka að setja lög þar sem kveðið er á um gjaldfrjálsan grunnskóla, það er Alþingi sem ákveður það, og vegna þess að það komu athugasemdir um kostnaðarliðinn sem ég held að hafi ekki verið tekið alveg tillit til af hálfu sveitarfélaganna: Hvað með matið og eftirlitið og sérfræðiþjónustuna? Allt eru þetta liðir sem auka kostnað sveitarfélaganna en ég tel óljóst hvaða fjárframlög eiga að koma á móti þessu frá ríkinu. Hv. þingmaður minntist á það áðan að því miður væri leikskólinn úti á landi í sumum tilfellum dýrari þótt húsnæðið væri ódýrara. Það stafar kannski fyrst og fremst af því að hagvöxturinn er víðar lakari úti á landi en á suðvesturhorninu. Og ef ég skildi hv. þingmann rétt var hún að mælast (Forseti hringir.) til þess að sú umræða yrði kannski tekin upp aftur og ég fagna því.