leikskólar.
Frú forseti. Það lagafrumvarp um leikskóla sem við ræðum um er í flestum atriðum mikil réttarbót. Því er líka þannig farið að fulltrúar allra flokka standa saman að nefndaráliti þótt hefði vissulega í ýmsum atriðum mátt gera betur eins og komið hefur verið inn á í umræðunum í dag.
Mikilvægt er að því sé haldið til haga um leikskólana að þeir hafa mjög mikilvægu hlutverki að gegna í nútímasamfélagi okkar. Þeir eru í rauninni ákveðið tæki í þeirri kvenfrelsisbaráttu sem háð hefur verið í marga áratugi og það er í minni núlifandi manna að þetta þótti mikil ögrun og ógnun við hið borgaralega samfélag að konum var með vöggustofum gefinn kostur á því að komast út af heimilinu.
Það er annað í samfélagsháttum okkar sem kallar líka á þessa breytingu sem er að fjölskyldumynstrið hefur breyst mjög mikið og það er ólíku saman að jafna þeim heimilum sem hér voru á fyrri hluta 20. aldar þegar systkinahópar voru það stórir að þar myndaðist eiginlega eins og lítill leikskóli inni á hverju heimili og síðan í hverri götu. Barnafjöldi nú er mun minni og það kallar enn á þessa nauðsyn og ég hygg að þær raddir fari nú senn að hljóðna sem telja að leikskólinn sé uppeldislega eitthvað vafasamur, en ekki er langt síðan þær voru háværar.
Í minni þess sem hér stendur, sem er nú þó á ungum aldri, að vísu ekki nógu ungum til að hafa komist á leikskóla, hygg ég þó að þeir hafi verið orðnir þekktir í Reykjavík þegar ég var að alast upp en ekki í þeim afdölum þar sem ég sleit barnsskónum. Kannski er það því að þakka að ég fékk í gegnum bernskuna og allt fram á þennan dag að halda skrollinu sem hefði örugglega ekki verið liðið í neinu leikskólastarfi og verið upprætt á því herrans ári 2008 og sjálfsagt hefði það þótt gott. En einhvern veginn er það nú þannig að þegar maður dragnast með slíka fötlun — það var nú verið að tala um hvort hv. þm. Guðni Ágústsson væri fatlaður og ég get alla vega (Gripið fram í.) státað af því að hafa sannarlega þessa fötlun sem er blestur á máli. Og eitt af hlutverkum menntastofnananna er að vinna á slíkum hlutum.
En svo ég hætti nú að vera í gamanmálum í sambandi við skrollið. Það sem mig langaði til að tala sérstaklega um — (Gripið fram í.) Hv. þm. Siv Friðleifsdóttir minnir á það og vill að ég rifji það upp í ræðustól að vitaskuld var það skrolli að nokkru leyti að þakka að ég náði því að komast í það starf sem ég er í vegna þess að félagar mínir í kosningabaráttunni bjuggu til ágætisbarmmerki sem á stóð: Á þing þó hann skrolli. Það fór eins og eldur í sinu um allt kjördæmið og hjálpaði örugglega mikið til að vekja athygli í harðri prófkjörsbaráttu. En þetta er útúrdúr frá umræðunni um leikskólamálin.
Mig langar til að koma aðeins inn á það sem mikið hefur verið rætt um í dag, þ.e. gjaldtöku í leikskólum. Það er rétt sem komið hefur fram að í stefnuskrá okkar framsóknarmanna viljum við stefna að því sem langtímamarkmiði að leikskólar verði gjaldfrjálsir. Ég held að það sé mjög mikilvægt markmið vegna þess að okkur veitir ekki af að koma sem mest til móts við barnafólk í landinu sem þarf að reiða heilmiklar fúlgur af hendi. Barnauppeldi er dýrt í dag í nútímasamfélagi í beinhörðum peningum. Um er að ræða aðgerð sem getur hjálpað okkur til þess að stuðla að því að vöxtur þjóðarinnar verði með eðlilegum hætti hér eftir sem hingað til. Það er raunverulegt vandamál víða í hinum vestræna heimi að barneignir eru of fátíðar og þjóðirnar ganga því ekki eðlilega fram.
Það er nokkur mótsögn í því fólgin hjá talsmönnum stjórnarliðsins í þessari umræðu, þó að ég hafi ekki heyrt þá tala á móti því markmiði að leikskólar eigi til framtíðar talið að verða gjaldfrjálsir, að telja að þetta sé löggjafarvaldinu óviðkomandi. Það er ekki þannig að löggjafarvaldið sé einskorðað við það að setja lög og reglur gagnvart framkvæmdarvaldi ríkisins. Löggjafarvaldinu er ætlað að setja lög og reglur gagnvart bæði þeim þáttum sem lúta að stjórnsýslu ríkisins og að hinu stjórnsýslustiginu, sveitarfélögunum.
Það segir samt ekki að löggjafarvaldið gangist í lagasetningu sem þessa án þess að hafa samráð við sveitarfélögin. Það er það sem gert hefur verið og það er það sem við erum að gera með þessum lögum, þar sem við erum að setja lög um verkefni sem við höfum falið sveitarfélögunum. Ef sú röksemdafærsla ætti við að gjaldtaka í leikskólum væri óviðkomandi Alþingi mætti með sömu rökum segja það um lagafrumvarpið allt. En svo er auðvitað ekki.
Þess vegna er miður að ekki skuli hafa verið notað tækifærið við þessa lagasetningu að stíga einhver skref í þá átt að minnka gjaldskylduna. Í stefnuskrá okkar framsóknarmanna hefur fyrsta skrefið í þeim efnum verið það að fimm ára stigið ætti einmitt að vera gjaldfrjálst. Það er orðið þannig í nokkrum sveitarfélögum. En það er mjög miður ef sú þróun verður mjög mismunandi milli sveitarfélaga og sveitarfélögin fari að keppa sín í milli á þeim forsendum. Það er miklu eðlilegra og í anda þeirrar jafnaðarstefnu sem Framsóknarflokkurinn vill standa fyrir og mér hefur þótt hin seinni ár að í rauninni allir flokkar vilji koma að, að um þetta séu heildstæðar reglur og þess vegna hefði löggjafar- og framkvæmdarvaldið haft mjög gott tækifæri til að ná einhvers konar samningum og lendingu sem síðan hefði verið sett sem markmiðslýsing í þann lagabálk sem er til umræðu.
Hv. þm. Einar Már Sigurðarson vék að því í ræðu sinni að aðeins eitt ár væri liðið af kjörtímabilinu og nógur tími til að taka þetta fyrir seinna. En tilfellið er að þegar við hreyfum núna við lögum um leikskóla er mjög líklegt að það verði eina breytingin í þeim efnum á þessu kjörtímabili. Þess vegna hefði verið betra að fara aðeins hægar yfir og gefa sér rýmri tíma til að vinna þetta mál betur með því m.a. að taka aðeins á gjaldtökuþættinum.
Þar með er ég ekki að segja að ég hefði treyst mér til að flytja tillögu eins og er í um margt ágætu lagafrumvarpi hv. þm. Kolbrúnar Halldórsdóttur þar sem hún leggur til að gjaldtaka til leikskóla sé alfarið bönnuð. Ég held að það sé of stórt skref til að taka sérstaklega við þær efnahagsaðstæður sem nú eru þar sem reynir mikið á að við séum ábyrg og förum varlega. Gætum hófs og sparsemi en það hefði aftur á móti ekki verið nein ofrausn að taka einhver skref og setja einhverja varða inn í framtíðina. Ég hvet því hv. menntamálanefnd til að huga að því í nefndarstarfi sínu þannig að jafnvel megi koma að því á lokastigi frumvarpsins.
En það er annað atriði sem mig langar til að víkja aðeins að. Það snertir 12. gr. frumvarpsins. 12. gr. er svohljóðandi:
„Gerð leikskólahúsnæðis skal taka mið af þörfum barna og þeirri starfsemi sem fram fer í leikskóla. Leggja skal áherslu á öruggt og rúmgott náms- og starfsumhverfi. Húsnæði og allur aðbúnaður skal taka mið af því að tryggja öryggi og vellíðan barna, svo sem hvað varðar húsbúnað, hljóðvist, lýsingu og loftræstingu. Gert skal sérstaklega ráð fyrir rými fyrir sérfræðiþjónustu vegna barna með sérþarfir og vinnuaðstöðu starfsfólks.“
Þetta er mjög góð markmiðslýsing og í rauninni ekkert sem ég ætla að finna að henni sem slíkri. En mig langar samt að víkja aðeins að húsnæðisþættinum vegna þess að ég held að í húsbyggingum fyrir leikskóla, eins og í fleiru sem lýtur að opinberum framkvæmdum á seinni árum, höfum við farið nokkuð fram úr okkur.
Ekki er lengra síðan en svo þegar ég átti sjálfur fyrst börn á leikskóla að þá þótti nægjanlegt að leikskólahúsnæði væri í rauninni húsnæði sem gat þess vegna verið fyrrum íbúðarhúsnæði eða húsnæði sem var byggt með sambærilegum kostnaði á hvern fermetra og venjulegt íbúðarhúsnæði. En á mjög fáum árum, síðustu árum síðustu aldar og árum nýhafinnar aldar, hefur sú þróun orðið að þessi kostnaður hefur vaxið gríðarlega. Í litlum sveitarfélögum þar sem reknir eru leikskólar með nokkrum tugum barna kosta leikskólabyggingar á annað hundrað millj. kr. Ég held að hér eins og svo víða annars staðar í hinum opinbera rekstri hafi hið opinbera gengið á undan í ákveðinni tegund af bruðli og óhófi og hafi sáralítið þjónað hagsmunum þeirra barna sem síðar hafa fengið að njóta þeirra stofnana. Því að í rauninni er mest af því sem skapar hinn aukna kostnað á leikskólum eitthvað sem verður þeim sem notar húsið afskaplega haldlítið eða jafnvel ósýnilegt.
Ég held að full ástæða sé til að ríkið, framkvæmdarvaldið í gegnum menntamálaráðuneytið, hafi ákveðna forgöngu, bæði í þessum efnum og varðandi skólahúsnæði yfirleitt, að við gætum hófs og sparsemi sem hefur algerlega vantað á síðustu árum við húsbyggingar. Miklu nær væri að verja fjármunum til annarra þátta ef hægt væri og menn telji möguleika á því, bæði varðandi gjaldtökuna sem ég vék að og laun þeirra umönnunarstétta sem vinna á þessum stofnunum sem hafa í mörgum tilfellum verið hraksmánarlega lág á sama tíma. Húsnæðiskostnaður hefur verið sprengdur upp án þess að almennilega hafi verið horft í það eða fagleg umræða hafi nokkurn tíma farið fram í rauninni um hvað hafi áunnist með þeim mikla kostnaðarauka.
Ég hygg að ekki sé fjarri lagi að á undanförnum áratug hafi kostnaður við húsnæði bæði fyrir grunnskóla og leikskóla margfaldast, gott ef ekki nálægt því sums staðar tífaldast miðað við þær tölur sem ég hef séð á blaðamennskuferli mínum þar sem ég hef skrifað um leikskólabyggingar í kjördæmi mínu, Suðurkjördæmi, og hygg ég að það sé ekkert frábrugðið öðrum kjördæmum í þessum efnum.
Síðan langar mig aðeins að víkja að þeim þáttum sem rætt var um áðan um rétt fatlaðra barna til leikskólanáms. Sjálfur er ég svo lánsamur að hafa hlotnast það að eiga fatlað barn og ala upp fatlað barn og glíma við það einmitt á þeim árum þegar ekki var sjálfsagt og raunar alls ekki að það fengi að njóta leikskólavistar. Ég get sagt af því mjög góða sögu, það gekk allt saman mjög vel og naut barnið mjög mikilvægrar menntunar. Ég held að það sé mjög mikilvægur þáttur fyrir hina fötluðu að njóta sambærilegrar þjónustu í þessum efnum og hérna hafa verið stigin mjög mikilvæg skref.
Ég er mjög hugsandi yfir þeim breytingartillögum sem hv. þm. Kolbrún Halldórsdóttir leggur fram í þessu efni. Mér sýnist af fyrstu yfirsýn og lestri þeirra að þær séu allar mjög til bóta. Þá er ég að tala um breytingartillögur á þingskjali 1071 varðandi nemendur með sérþarfir. Því þetta er mjög mikilvægur þáttur fyrir foreldra hinna fötluðu vegna þess mikla álags sem fylgir því oft að eiga fatlað barn umfram það sem fylgir öðru barnauppeldi og er allt barnauppeldi þó erfitt og á að vera það eins og allt sem miklu skilar. Það þarf mikið í að leggja. En það er líka barninu mjög mikilvægt að vera alveg frá því fyrsta hluti af jafnaldrahópum sínum og njóta þar þjónustu þó svo það kosti svolítið umfram. Það var einmitt vikið að því í umræðunni fyrr hvernig mætti mæta því. Vissulega er það svo, því miður, í samfélagi okkar í dag að sveitarfélögin bítast að nokkru leyti um þetta — eða kannski í öfugri merkingu, þau horfa mjög í það þegar fötluð börn koma inn í sveitarfélögin vegna þess að þau vita að það er mikill kostnaður fyrir þau.
Ég hef lengi rætt um að við séum á ákveðnum villigötum varðandi þjónustu við hina fötluðu þar sem við erum í raun komin inn í kerfi sem líkist svolítið því gamla kerfi þegar sveitarfélög höfðu beinlínis hagsmuni af því að koma kostnaðarsömum einstaklingum af sér yfir á næsta sveitarfélag og standa klár að því að það væri örugglega ekki þeirra hlutverk að taka að sér hinn og þennan kostnað. Ég held að hægt sé að leysa slíka þætti með fyrirkomulagi ekki ósvipuðu því sem tíðkast hefur í Hollandi og hefur verið kallað bakpokafyrirkomulag, þar sem við gætum sagt að ákveðin fjárveiting yrði lögð á hvern einstakling í samræmi við þarfir hans. Þegar slíkt liggur fyrir er auðveldara að jafna þessu út með þátttöku ríkisins.
Ég held að við leysum þetta vandamál ekki með stækkun sveitarfélaga. Það hefur í rauninni sýnt sig að stækkun þeirra leysir þetta ekki nema að litlu leyti, auk þess sem landið er það strjálbýlt að það verða alltaf í því sveitarfélög sem eru tiltölulega fámenn eða raunar mjög fámenn miðað við þær nútímaþarfir hvað varðar þjónustu. En þetta er málaflokkur sem er utan við efni þessa frumvarps en mér þótti rétt að víkja aðeins að honum.
Að öðru leyti tel ég rétt að styðja öll meginatriði sem koma fram en endurtek þá hvatningu mína að ég hvet menntamálanefnd til að taka alvarlega til skoðunar að koma að einhverju leyti til móts við þær hugmyndir að leikskólinn verði smám saman gerður gjaldfrjáls. Að stigin verði einhver skref í þá átt með frumvarpinu, því að meiri hluti þeirra flokka og meiri hluti þeirra þingmanna sem sitja á Alþingi koma úr flokkum sem hafa það á stefnuskrá sinni að leikskólinn skuli verða gjaldfrjáls.
Við heyrðum málflutning þingmanns Sjálfstæðisflokksins, hv. þm. Ragnheiðar Ríkharðsdóttur fyrr í dag þar sem hún tók alla vega ekki afstöðu gegn því að leikskólinn yrði gjaldfrjáls. Í raun erum við kannski að tala um mjög breiða samstöðu um að þetta sé markmiðið og þetta beri að gera. Og þá er mjög miður ef við notum ekki tækifærið við samþykkt á jafngóðum og viðamiklum lagabálki um leikskólana til að marka þá stefnu með einhverjum hætti. Þar með er ég ekki að segja að við getum lagt það fyrirvaralaust á sveitarfélögin að banna þeim alla gjaldtöku. En við getum stigið einhver skref og markað einhver spor í þá átt og það er einfalt að gera án þess að ég fari út í nákvæma útfærslu á því.