grunnskólar.
Hæstv. forseti. Mig er farið að lengja eftir því að heyra hvaða áform hæstv. forseti hefur um þinghaldið hér á eftir. Það er rangt hjá hv. formanni menntamálanefndar að ég hafi borið fram tillögu um að umræðunni yrði lokið um þetta þingmál, að skrúfað yrði fyrir frekari umræðu. Ég bar slíka tillögu ekki fram. Ég sagði hins vegar á fundi með þingflokksformönnum og forseta þingsins að ef í það stefndi að þessari umræðu lyki upp úr miðnætti, jafnvel eftir miðnætti, værum við reiðubúin að halda eilítið áfram.
Hæstv. forseti þingsins hótaði því þá að taka framhaldsskólann til umræðu og keyra hann hér inn í morguninn og misbjóða þannig Alþingi (Forseti hringir.) og skólasamfélaginu, kennarafélögunum sem hafa ályktað og sent álitsgerðir til þingsins. Ég krefst þess (Forseti hringir.) að hæstv. forseti upplýsi þingið um hver áform hans eru.