135. löggjafarþing — 106. fundur,  23. maí 2008.

grunnskólar.

285. mál
[01:56]
Hlusta

Siv Friðleifsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er hárrétt hjá hv. þm. Kolbrúnu Halldórsdóttur að brýnt er að auka menntarannsóknir á Íslandi. Mjög sláandi tölur eru hér nefndar — 40% aukning stöðugilda og minni bekkir, maður skyldi halda að starfið mundi blómstra og meiri árangur nást. Það virðist ekki hafa skilað auknum árangri eins og ég skildi málflutninginn hér áðan. Ég tel mjög brýnt og styð það að rannsóknir séu auknar. Reyndar er það þannig að rannsóknir á hvaða sviði sem er verða til þess að menn fái betri þekkingu og nái þá að nýta fjármagnið betur.

Finnar hafa náð mjög góðum árangri í PISA-könnuninni. Ef ég man rétt virðast þeir ná meiru út úr fjármagninu sem þeir setja í grunnskólann. Þetta er einmitt sú gagnrýni sem kom fram hjá OECD, að árangurinn geti ekki talist ásættanlegur miðað við að við eyðum meira fjármagni en nokkur önnur þjóð innan OECD á hvern nemanda. Ég hef ekki heyrt neinn hrekja þann útreikning að við séum ekki með hæsta framlagið á hvern nemanda innan OECD. Ég býst því við að það sé rétt. Að vísu getur smæðin verið einhver skýringarþáttur en það er væntanlega eitthvað kerfislægt sem er að. Kannski taka nýju grunnskólalögin eitthvað á því en það verður spennandi að sjá eftir nokkur ár hvernig við mælumst í næstu könnun.