135. löggjafarþing — 107. fundur,  23. maí 2008.

afbrigði um lengd þingfundar.

[10:53]
Hlusta

Jón Bjarnason (Vg):

Herra forseti. Það er hálf dapurlegt að verða vitni að því að á sorglegu eins árs afmæli ríkisstjórnarinnar skuli Samfylkingin vera svo gjörsamlega lögst undir Sjálfstæðisflokkinn að sú valdbeiting sem hann er þekktur fyrir nær fram að ganga ef fer sem horfir.

Ég minni á orð forseta þingsins, Sturlu Böðvarssonar, þegar talað var fyrir breytingum á þingsköpum. Þar lagði hann áherslu á að mikilvægasti þáttur skipulagningar umræðunnar á þinginu sé innan skynsamlegra og hæfilegra marka og áætla megi fyrir fram hve langan tíma það taki. Næturfundir ættu auðvitað ekki að þekkjast. Þingmenn og starfsfólk Alþingis eiga eins og annað fólk að geta sinnt eðlilegu fjölskyldulífi.

Síðan má líka vitna í þingsköpin í 8. gr. þar sem kveðið er á um að forseti skuli sjá til þess að störf þingsins (Forseti hringir.) séu í samræmi við ákvæði stjórnarskrár, þingskapa og annarra laga. Þessi fundarstjórn (Forseti hringir.) er ekki í samræmi við (Forseti hringir.) þingsköp. Hún er ekki í (Forseti hringir.) samræmi við þingsköp.