135. löggjafarþing — 107. fundur,  23. maí 2008.

afbrigði um lengd þingfundar.

[10:56]
Hlusta

Bjarni Harðarson (F):

Herra forseti. Ég vil beina því til hæstv. ríkisstjórnar að hún geri sér hlutina léttari fyrir með því að leiða það í lög sem væri henni nokkurt hagræði að að allir dagar heiti hér eftir þriðjudagar. Þá væri þetta allt saman léttara umfangs því að lögskýringar eru nú orðnar mjög ævintýralegar hér í hinu háa Alþingi.

Það er alveg ljóst að sá hroki sem hér var viðhafður í samskiptum við stjórnarandstöðu í nótt varð stjórnarmeirihlutanum að falli þá. Nú vill stjórnarmeirihlutinn enn keyra á með sama hrokanum og skiptir í rauninni ekki máli hvað atkvæðagreiðslur segja. Slíkur hroki er henni ekki til sóma eða hinu háa Alþingi.