afbrigði um lengd þingfundar.
Hæstv. forseti. Ég verð að segja fyrir mig að mér finnst alltaf smávon þegar forseti hefur tekið rökum og boðað til fundar, það er skynsamlegt, enda var þessi hæstv. forseti hér í nótt og þá hvarf úr honum hrokinn og yfirlætið. Hingað kemur stjórnarliðið sem svaf í alla nótt með sama stífkrampann og hrokann og heldur því fram sem var horfið frá í nótt. Ég held að þetta fólk þurfi að ganga á fund þeirra fáu stjórnarliða sem voru hér í nótt og beygðu sig undir það að ekki er hægt að niðurlægja stjórnarandstöðuna, (Gripið fram í: Þetta er ekki ...) það er ekki hægt að ganga yfir hana í umræðum. Þess vegna fagna ég því að sá forseti sem tók rökum í nótt boðar til fundar í hádeginu með þingflokksformönnum og í því er alltaf ný von. Ég vona að hann taki menn sína í Samfylkingunni og segi þeim lexíuna hvað gerðist í nótt því að þetta er fáheyrð framkoma og ég undra mig náttúrlega á því að myndarlegur, ungur þingmaður eins og hv. þm. Bjarni Benediktsson skuli haga sér svona (Forseti hringir.) í morgunsárið á föstudegi.