afbrigði um lengd þingfundar.
Virðulegur forseti. Ég var hér sem þingmaður stödd til klukkan 2:57 í nótt og menn úr stjórnarandstöðunni tala um hroka, valdbeitingu og yfirlæti. Með fullri virðingu fyrir þingmönnum stjórnarandstöðunnar beittu þeir og beita með framkomu sinni valdbeitingu, hroka og yfirlæti (GÁ: Þetta er yfirlæti.) og menn verða að taka því ef þeim eru ekki allir sammála. Þetta er upplifun mín, hæstv. forseti, af framkomu stjórnarandstöðunnar í nótt og ég stend á henni, hv. stjórnarandstaða, hún var ykkur ekki til sóma.