afbrigði um lengd þingfundar.
Herra forseti. Ég varð hissa að heyra ræðu hv. þm. Ragnheiðar Ríkharðsdóttur þar sem hún talaði um hroka stjórnarandstöðunnar. Í gær fóru fram afar málefnalegar og góðar umræður um leikskólafrumvarpið og grunnskólafrumvarpið. Þeirri umræðu var ítrekað hrósað af stjórnarmeirihlutanum eða þeim fáu þingmönnum sem hér voru og ég tel meira að segja að hér hafi verið fluttar ræður sem seinna meir verða meitlaðar í stein og vil kannski nefna ræðu hv. þm. Árna Johnsens og kollega míns Bjarna Harðarsonar.
Ég vil líka minnast þess að sjálfstæðismenn fóru í andsvör gegn eigin flokksmönnum og þeir gerðu kannski sitt til að sú umræða yrði skemmtileg en þá líka lengri.
Við framsóknarmenn höfum farið fram á að haldin verði tvöföld umræða um framhaldsskólafrumvarpið. Ég tel að almenningur í landinu og (Forseti hringir.) kennarar almennt eigi rétt á því að um það (Forseti hringir.) sé fjallað í dagsbirtu.