afbrigði um lengd þingfundar.
Virðulegur forseti. Ég verð að segja að ég tel að sú umræða sem hefur farið fram í dag sé ekki til þess fallin að auka virðingu þessa vinnustaðar. Sem nýliði á þingi verð ég eiginlega að lýsa yfir miklum vonbrigðum með það hvernig umræðan hefur farið fram. Sem nýliði segi ég, en þó er ég ekki nýliði á vettvangi stjórnmála vegna þess að ég hef starfað í 14 ár á vettvangi sveitarstjórna og það leikrit sem fer fram í dag finnst mér ekki samboðið virðingu Alþingis.
Menn tala um nýju þingsköpin. Starfsfólk Alþingis er á einu máli um að nýju þingsköpin hafi til muna bætt vinnuumhverfi þess hér, það hafi einungis tveir næturfundir farið fram frá því að nýju þingsköpin tóku gildi. Við erum á fyrsta ári nýs þingskapabálks og ég segi: Slökum nú aðeins á og gefum (Forseti hringir.) þessum nýju (Forseti hringir.) þingsköpum tækifæri (Forseti hringir.) til að sanna sig og förum að vinna eins og manneskjur.