135. löggjafarþing — 107. fundur,  23. maí 2008.

Suðurstrandarvegur.

[11:22]
Hlusta

samgönguráðherra (Kristján L. Möller) (Sf):

Hæstv. forseti. Formaður Framsóknarflokksins er gamansamur maður og í framhaldi af þeirri umræðu sem hér hefur verið er greinilegt að ekki hafa allir fengið þann svefn sem þeir þurfa að fá til að koma glaðir til leiks.

Fyrir það fyrsta vil ég segja að ekki er verið að fresta neinu hvað varðar Suðurstrandarveg. Það er verið að flýta framkvæmdum. Sú ríkisstjórn sem nú situr ákvað það og tilkynnti 10. júlí í fyrra að Suðurstrandarvegur yrði settur í flýtiframkvæmd en í þeirri samgönguáætlun, virðulegi forseti, sem m.a. hv. þm. Guðni Ágústsson samþykkti og stóð að, var Suðurstrandarvegur með peninga á þessu tímabili, á öðru tímabili samgönguáætlunar, þ.e. 2011–2014, og líka á þriðja tímabili 2015–2018. Ekki var dugurinn meiri hjá framsóknarmönnum hvað þennan veg varðar en þar kemur fram. Hins vegar hefur núverandi ríkisstjórn eins og ég sagði áðan sett þetta í flýtiframkvæmd. Nægt fé er til framkvæmda og engu er verið að fresta. Útboðið er að fara í gang. Hins vegar tafðist það örlítið frá því sem ætlunin var að bjóða út m.a. vegna þess að það kom fram að fyrirhuguð veglína var ekki alveg samkvæmt skipulagi sveitarfélagsins. Samningar við landeigendur hafa tekið örlítið lengri tíma og síðast en ekki síst er verið að breyta aðeins verkferlum. Verið er að stækka fyrri hlutann vegna þess að það er talið hagkvæmara út af efnisflutningum.

Virðulegi forseti. Ég get sagt það eitt að þetta er á fullri ferð og útboð er væntanlegt næstu daga. Þetta er gömul ákvörðun um að fara í þennan veg sem hefur ekki gengið eftir. Nú er verið að inna það af hendi. Útboðið er að fara fram. Þetta er stórt verk. Það þarf að bjóða út m.a. á Evrópska efnahagssvæðinu en þessi ríkisstjórn hefur heldur betur gefið í hvað þetta varðar og ég trúi ekki öðru en að hv. þingmaður taki gleði sína á ný og komi og fagni þessari ákvörðun núverandi ríkisstjórnar sem var miklu betri en áður var.