samkeppni á matvælamarkaði.
Virðulegi forseti. Á undanförnum vikum og mánuðum liggur við að segja höfum við í sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd fjallað um svokallaða matvælalöggjöf, sem er ansi viðamikil löggjöf, og innleiðingu á reglum Evrópusambandsins um meðferð matvæla.
Margt áhugavert hefur komið fram í þeirri umræðu. Eitt af því sem hefur þó verið einna mest áberandi þar er sú mikla tortryggni og sú mikla gjá sem ríkir á milli framleiðenda á matvælamarkaði á Íslandi og þeirra smásala sem reka stærstu keðjurnar sem starfa á markaði. Þessi tortryggni er svo rík að þar koma fram mjög alvarlegar athugasemdir um áhrif á samkeppni og samkeppnishamlandi aðgerðir. Hafa nefndarmenn m.a. beint þeim tilmælum til þessara aðila, í ljósi þeirra orða sem fallið hafa á fundum nefndarinnar, að það sé mjög mikilvægt að þeir reyni að vinna að því að ná einhverri sátt um sitt samstarf.
Það eru tveir til þrír smásalar ráðandi á þessum markaði, smásölumarkaði með matvæli í landinu. Spurning mín til hæstv. viðskiptaráðherra snýst um það að við fáum á hreint hver sé markaðshlutdeild hverrar keðju fyrir sig á matvælamarkaðnum. Upplýsingarnar sem við höfum fengið frá þessum mismunandi aðilum eru þær að stærsti aðilinn sé með frá 40%, sem hann segir sjálfur í nefndinni, og upp í 65%. Þetta er gríðarlegur munur. Ráðherrann sagði áðan að hún væri um 50%. Ég vil þá spyrja ráðherra þeirrar spurningar: Er ástæða til þess í ljósi þessara upplýsinga að hann láti fara fram sérstaka könnun á því hvort hlutirnir hafi breyst eitthvað frá þeim upplýsingum sem hann gaf í (Forseti hringir.) ræðu sinni áðan?