135. löggjafarþing — 107. fundur,  23. maí 2008.

samkeppni á matvælamarkaði.

[11:44]
Hlusta

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir þessar upplýsingar. Ég segi það þó enn og aftur að þessar mjög svo misvísandi upplýsingar sem koma annars vegar frá framleiðendum og dreifingaraðilum á matvælamarkaði til verslana þar sem talað er um allt að 65% hlutdeild Haga á þessum markaði, valda áhyggjum og eru auðvitað mjög sérstakar. Þeir mæla þetta kannski meira í magni en í krónum og aurum og það er mikilvægt að skoða þetta út frá þeim lið líka.

Við höfum fengið að heyra aðrar athugasemdir eins og t.d. það að aðilar á matvælamarkaði, keðjurnar, leyfi sér minni álagningu á innflutt kjöt en á íslenskt. Þeir hafa, eðlilega, skilarétt á íslensku kjöti en ekki á innfluttu. Það eru svona hlutir sem ég held að við verðum að reyna að vinna í. Það er óþolandi ef íslenskir framleiðendur landbúnaðarafurða þurfa að búa við það að þær smásölukeðjur sem eru ríkjandi og ráðandi á markaðnum hér á landi leyfi sér að leggja minna á innflutt matvæli hreinlega til að skapa sér sterkari samkeppnisstöðu gagnvart þeim sem eru hér í framleiðslu.