135. löggjafarþing — 107. fundur,  23. maí 2008.

afstaða ríkisstjórnarinnar til hrefnuveiða.

[12:38]
Hlusta

Steinunn Valdís Óskarsdóttir (Sf):

Frú forseti. Það var býsna merkilegt að fara í gegnum skjöl Alþingis og lesa ræður þingmanna um hvalveiðar í gegnum tíðina. Ég tók mig til og rifjaði þetta aðeins upp og komst þá auðvitað að því, eins og þeir vita sem hér sitja, að um þetta mál eru afar skiptar skoðanir á Alþingi.

Ég tek undir það sem hæstv. forsætisráðherra sagði í ræðu sinni að hér er auðvitað ekki um neitt stórmál að ræða í sjálfu sér. Það er líka morgunljóst að það er ekki hægt að nálgast umræður um hvalveiðar einangrað og þröngt en sem þingmaður Samfylkingarinnar styð ég að sjálfsögðu heils hugar þá ákvörðun utanríkisráðherra og ráðherra Samfylkingarinnar að styðja ekki ákvörðun sjávarútvegsráðherra um að hefja hrefnuveiðar. Það geri ég vegna þess að ég tel það ekki þjóna hagsmunum okkar, hvorki efnahagslega né atvinnulega, að hefja hvalveiðar nú því að sá fjöldi sem heimilt er að veiða er það lítill að hann skiptir engu máli til eða frá. Þetta hefur hins vegar gríðarleg áhrif á ímynd okkar út á við og það má m.a. sjá í skýrslu forsætisráðherra, sem nýlega var gefin út, þar sem talað er um tvo veikleika varðandi ímynd Íslands. Annars vegar er talað um fjármálakreppuna og hins vegar um hvalveiðar — fjármálakreppuna og hvalveiðar. Í skýrslunni segir orðrétt, með leyfi forseta:

„Virðist ákvörðunin hafa verið tekin án þess að huga vandlega að þeim vanda sem hún gæti skapað fyrir uppbyggingu og varðveislu ímyndar Íslands.“ — Þ.e. ákvörðun um að hefja hvalveiðar.

Það er skoðun mín að menn séu á kolrangri braut nú að hefja hvalveiðar og af því að menn eru að vitna hér til ályktunar Alþingis frá 1999 vil ég rifja það upp að 22 nýir þingmenn tóku sæti á Alþingi eftir síðustu kosningar og ég er viss um að ef afstaða þingsins til hvalveiða væri könnuð nú væri hún önnur en hún var 1999.