framhaldsskólar.
Virðulegi forseti. Vegna orða hv. þingmanns núna síðast þá spyr ég: Hvaða breytingartillögur kom meiri hlutinn með við stærstu ágreiningsatriðin í málinu og þá er ég að tala um stúdentsprófið, einingarnar og miðstýringuna? Hvaða breytingartillögur eru um þær lagagreinar í textanum?
Í öðru lagi verð ég að spyrja vegna þess að mér fannst gefið í skyn að við í stjórnarandstöðunni værum að leka einhverjum upplýsingum til Félags framhaldsskólakennara og stæðum á bak við þetta bréf að einhverju leyti. Ég verð að fá skýr svör við því hvort þetta hafi verið misskilningur (EMS: Hvar varst þú?) af minni hálfu vegna þess að það var talað um áróður af okkar hálfu og mig langar að vita hvenær sá áróður hófst.