135. löggjafarþing — 107. fundur,  23. maí 2008.

framhaldsskólar.

286. mál
[20:31]
Hlusta

Árni Þór Sigurðsson (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Mig langar aðeins að impra á einu atriði sem kom fram í yfirgripsmikilli, málefnalegri og innihaldsríkri ræðu hv. þm. Guðbjarts Hannessonar. Það varðar eitt af því sem hann nefndi úr erindi Félags framhaldsskólakennara sem barst nýverið þar sem vakin er athygli á því að með fræðsluskyldunni til 18 ára aldurs sé mikilvægt að veita nemendum skilgreindan rétt til framhaldsskólavistar í grennd við heimili sitt og er þar m.a. vísað til ástandsins á suðvesturhorninu. Hann rakti það í máli sínu að hér væri ýjað að því að taka aftur upp hverfisskólafyrirkomulag á framhaldsskólastigi og hann taldi að við værum búin að missa af lestinni.

Ég vil ekki segja að ég sé honum algjörlega ósammála í þessu atriði. Ég held að mjög erfitt sé að koma því á á nýjan leik miðað við það hvernig mál hafa þróast og miðað við staðsetningu og stöðu framhaldsskólanna á þessu svæði. Engu að síður er við vissan vanda að etja í þessu efni því að ef tekin verður upp fræðsluskylda til 18 ára aldurs er auðvitað eðlilegt að reynt sé að tryggja nemendum, ólögráða nemendum, skólavist í framhaldsskóla sem næst heimili sínu. Það hlýtur að eiga að verða meginregla enda þótt það geti verið erfitt.

Við höfum mörg dæmi um nemendur sem hafa sótt um einn skóla og annan til vara og hafa lent einhvern veginn milli skips og bryggju ef svo má að orði komast, hafa ekki komist inn í aðalskólann og hafa svo dottið út úr röðinni í varaskólanum o.s.frv. Það eru allt of mörg dæmi um að þetta hafi gerst hér og ég spyr því hv. þingmann: Hefur hann velt því eitthvað fyrir sér hvernig taka mætti á þessum vanda og hvort hægt sé að gera það í gegnum þetta lagafrumvarp eða með einhverjum öðrum aðgerðum (Forseti hringir.) í framhaldinu?