framhaldsskólar.
Hæstv. forseti. Ég verð að viðurkenna og ég held að hv. þm. Bjarna Harðarsyni megi vera það ljóst að frumvarpið var ekki samið af mér og ekki upp úr stefnuskrá Samfylkingarinnar heldur var það unnið í sameiningu.
Það eru verulegar lagfæringar í sambandi við gjaldfrelsið. Ég gerði ekki mikið mál úr innritunargjöldunum einfaldlega vegna þess að þeim á að halda mjög niðri og þar er ekki um að ræða umtalsverðan kostnað. Hvað varðar námsgögnin þá á enn eftir að útfæra það. Ég hef rætt það áður í ræðustól hvað við eigum við með námsgögnum. Einstakir framhaldsskólar eru þegar farnir að skaffa tölvur. Ætlum við að hafa það inni? Ég treysti mér ekki til að setja það nákvæmlega, þetta verður að bindast einhverri upphæð eða að finna form á því með einhverjum öðrum hætti. En ég geri mjög ríkar kröfur um það eins og við höfum gert að skólinn verði þannig að fólk geti sótt hann óháð efnahag og búsetu og mun fylgja því eftir með öllum ráðum og dáðum.
Varðandi einingafjöldann þá er hægt að snúa spurningunni við þegar spurt er hvort ekki verði eitthvert algilt stúdentspróf. Það vildu menn á sínum tíma þegar þeir vildu fá samræmt stúdentspróf, að það væri eitthvert inntökupróf í framhaldsskóla sem væri algilt. Að setja 240 einingar tryggir ekki nokkurn skapaðan hlut í sambandi við það hvað er algilt og hvað ekki nema menn ætli að búa til eitt stúdentspróf og hvar ætlum við þá að setja iðn- og verknámið gagnvart bóknáminu? Vandamálið hjá okkur er að það verður að útfæra. Við höfum þrjú ár til þess að ákveða með hvaða hætti og hvaða fjölbreytileika við ætlum að hafa í stúdentsprófunum til að tryggja jafnstöðu bóknáms og iðn- og verknáms og það er verðugt verkefni því að öll höfum við talað um það í gegnum árin að styrkja þurfi iðn- og verknám á Íslandi. Við erum afar aftarlega á merinni hvað það varðar og ég ætla að treysta því að við náum því í framhaldinu. Það er ein af ástæðunum fyrir því að ég er ekki að berjast fyrir 240 einingum. Það getur vel verið að þær verði 220 eða eitthvað slíkt ef við förum að reikna með einhverjum hætti hvernig prófið verður. En það verður að vera alveg ljóst eins og hv. þm. Bjarni (Forseti hringir.) Harðarson segir, það þarf að vera á hreinu hvar það stúdentspróf sem menn ljúka gildir sem inntökupróf. Það verður að vera alveg á hreinu.