framhaldsskólar.
Hæstv. forseti. Ég vil fyrst og fremst gera athugasemdir við ræðu hv. þm. Guðna Ágústssonar. Hann heldur því fram að menn telji athugasemdir Félags framhaldsskólakennara léttvægar. Ég tók það fram í ræðu minni áðan að ég teldi þær mjög mikilvægar. Ég held að þar sé tekið á mjög mörgum málum sem þarf að vinna úr í framhaldinu, í úrvinnslunni, þ.e. framkvæmdina á lögunum. Það er næsta verkefni og þess vegna hefði ég viljað fá lögin sem fyrst í gagnið þannig að við fengjum í gang þá vinnu sem þarf að vinna, m.a. hvað varðar einingakerfið, nýjar útfærslur námsáfanga og annað sem framhaldsskólanum er ætlað að vinna að — útfærslu á því einingakerfi sem sett er inn í lögin en sú vinna þarf að hefjast sem allra fyrst.
Það að fresta þessu þó ekki væri nema til haustsins þýðir að málið dregst um eitt ár. Ég tel að það sé ákveðinn ábyrgðarhluti varðandi gildistökuna ef við missum það fram yfir næsta skólaár. En auðvitað getur það komið til greina og einhverjir gætu þegið að spara þá peninga sem áttu að fara í framhaldsskólann með því að seinka gildistökunni. Ég hef ekki verið þeirrar skoðunar.
Ég tek athugasemdirnar mjög alvarlega, hef skoðað flestar þeirra mjög ítarlega í vinnslu frumvarpsins. Það var líka ánægjulegt að mér heyrðist á upplestri hv. þm. Guðna Ágústssonar á stefnuatriðum Framsóknarflokksins að þau séu komin inn í frumvörpin sem hér eru lögð fram. Hv. þingmaður getur því rólegur samþykkt öll frumvörpin.