tilkynning um dagskrá og tilhögun þingfundar.
Hæstv. forseti. Ef svo ólíklega vildi til að okkur tækist ekki að ljúka 16 dagskrárliðum sem liggja á borðum alþingismanna, værum við þá ekki að brjóta gegn samþykktum Alþingis ef við samþykktum nú hér við atkvæðagreiðslu að ljúka dagskránni? Ég spyr: Hvers konar rugl er þetta eiginlega? Er ekki eðlilegt að við tökum þessa umræðu og atkvæðagreiðslu eftir atvikum eftir að formenn þingflokka hafa komið saman til fundar með forseta Alþingis? Til stendur að sá fundur verði haldinn núna um hádegisbilið.
Ég legg til, hæstv. forseti, að þessari atkvæðagreiðslu verði skotið á frest þar til sá fundur hefur farið fram. Við gerum í sjálfu sér ekki athugasemd við að fram fari kvöldfundur en að hafa það með í ákvörðun eða tillögu að við ljúkum dagskránni, það er bara hreinn skopleikur.