tilkynning um dagskrá og tilhögun þingfundar.
Virðulegur forseti. Ég tel eðlilegt að við bíðum með þessa atkvæðagreiðslu og ræðum það í hópi þingflokksformanna hvernig dagskráin verður í dag. Til stóð að halda fund áður en þessi þingfundur hófst en þeim fundi var frestað. Ég hef enga athugasemd við það en það er alveg ljóst að stjórnarandstaðan hefur verið tilbúin til að vera hér til miðnættis síðustu daga. Við höfum þó gert mjög verulegar athugasemdir við það að fara fram yfir miðnætti og það er ekki í anda nýrra þingskapa sem við samþykktum fyrir stuttu síðan þannig að ég tel að við eigum að bíða með þessa atkvæðagreiðslu þangað til þingflokksformenn hafa hist til að fara yfir störf þingsins. Það er alveg ljóst að það er mjög mikilvægt að ná einhverju samkomulagi um hvernig þingstörfum verður háttað því að við ætlum að hætta á fimmtudaginn, þá á að fresta þessu þingi fram á haustið.