135. löggjafarþing — 108. fundur,  26. maí 2008.

breyting á lögum á auðlinda- og orkusviði.

432. mál
[11:16]
Hlusta

Frsm. 2. minni hluta iðnn. (Álfheiður Ingadóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Vinstri græn eru ekki á móti rafmagni, hv. þingmaður, og telja að það sé til ýmissa hluta nytsamlegt, og þess vegna eru þingmenn Vinstri grænna ekki á móti raforkulögunum.

Mig langar til að svara þessu atriði hvað varðar samkeppnina á þeim örstutta tíma sem ég hef. Ég vil leyfa mér að vísa til álits Alþýðusambands Íslands hvað þetta varðar. Það er staðreynd að væntingar þeirra sem héldu að samkeppnin mundi halda innreið sína og lækka raforkuverð til neytenda hafa einfaldlega ekki gengið eftir. 0,35% skipti á raforkusala er ekki mjög mikill árangur, hv. þingmaður, ekki í þeim efnum. Og það sem meira er: Verðið hefur ekki lækkað, verðið hefur hækkað. Ég hef ekki tök á því að lesa hér álit Alþýðusambands Íslands en ég geri það kannski (Forseti hringir.) síðar í dag.