135. löggjafarþing — 108. fundur,  26. maí 2008.

viðbrögð ríkisstjórnarinnar við áliti mannréttindanefndar SÞ.

[15:06]
Hlusta

forsætisráðherra (Geir H. Haarde) (S):

Herra forseti. Þann 11. júní rennur út sá frestur sem hv. þingmaður gat um. Tíminn hefur verið nýttur vel frá því að þetta álit kom á síðasta hausti en þar var okkur gefinn 180 daga frestur til að svara því. Það er rétt að rifja það upp að álit sem þetta er ekki bindandi að alþjóðarétti. Það bindur þar af leiðandi ekki hendur íslenskra stjórnvalda.

Sjávarútvegsráðherra hefur fyrir hönd ríkisstjórnarinnar látið vinna mjög vandaða lögfræðivinnu í sambandi við þetta mál. Að henni hafa unnið a.m.k. þrír valinkunnir lögfræðingar. Það styttist í að svarið verði tilbúið og það verður sent til nefndarinnar eins og vera ber, og hv. þm. Guðni Ágústsson þarf ekki að efast um að ríkisstjórnin muni svara þessu erindi. En ekki er búið að ganga endanlega frá svarinu enda eru nokkrar vikur til stefnu. Þetta er nú svarið, hv. þingmaður, og málið er í þessari vinnslu. Það er langt komið í meðferð okkar eftir þá lögfræðiyfirferð sem átt hefur sér stað en þetta er sem sagt staða málsins.

Hv. þingmaður nefndi Karl V. Matthíasson, varaformann sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar. Það er nú ekki af þeirri ástæðu en eins og kunnugt er fór hann til Síberíu í dag.