135. löggjafarþing — 108. fundur,  26. maí 2008.

húsnæðismál Fjölsmiðjunnar.

[15:26]
Hlusta

Birkir Jón Jónsson (F):

Hæstv. forseti. Í Fréttablaðinu í dag er frétt þess efnis að Fjölsmiðjan sé að verða húsnæðislaus. Fjölsmiðjan var stofnuð árið 2001 og er úrræði fyrir ungt fólk sem er komið yfir grunnskólaaldur, vinnumarkaðsúrræði sem hefur reynst mörgum mjög vel. Í Fjölsmiðjunni eru í dag 70 ungmenni sem glímt hafa við einelti í skólum, verið félagslega einangruð, jafnvel tölvufíklar, hafa flosnað upp úr framhaldsskólum eða eru jafnvel að ná tökum á lífi sínu eftir eiturlyfjaneyslu. Það er mjög slæmt ef starfsemi Fjölsmiðjunnar er í einhverjum ólestri eða að framtíð hennar sé nokkuð óráðin eins og marka má af fréttaflutningi og viðtali við Þorbjörn Jensson sem er forstöðumaður Fjölsmiðjunnar.

Þar sem félagsmálaráðuneytið er einn af stofnendum Fjölsmiðjunnar sem stofnuð var árið 2001 þá vil ég inna hæstv. ráðherra Jóhönnu Sigurðardóttur eftir því hvað líði því að leysa vanda Fjölsmiðjunnar, þann húsnæðisvanda sem við blasir. Nú er það ljóst að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa lýst yfir vilja til þess að koma að því að greiða fyrir nýtt húsnæði. En samkvæmt fréttum stendur það upp á hæstv. ríkisstjórn í þessu máli, sem og svo mörgum öðrum, að gefa svör um það hvenær Fjölsmiðjan megi vænta svara um fjárveitingu fyrir nýju húsnæði. Þess má geta að Fjölsmiðjan starfar núna á undanþágu vegna brunavarna. Þess vegna er það algerlega ólíðandi, hæstv. forseti, að ekki sé gripið til einhverra úrræða til að bæta húsnæðismál Fjölsmiðjunnar sem hýsir 70 ungmenni í dag sem eru að fóta sig á ný í lífinu. Hún hefur skilað gríðarlega góðu starfi á sl. sjö árum. (Forseti hringir.) Því er eðlilegt að spyrja hæstv. félagsmálaráðherra að því hvað líði úrbótum í málum Fjölsmiðjunnar.