leikskólar.
Hæstv. forseti. Takk fyrir að hleypa mér í ræðustólinn þó að ég hafi ekki beðið um atkvæðaskýringu strax og atkvæðagreiðsla við þessa grein var tilkynnt. En ég verð að segja það, hæstv. forseti, mér þykir það afar lítilmótlegt af hv. þingmanni sem hér talaði síðast að halda því fram að þær séu flausturslega unnar, breytingartillögur mínar. Ég viðurkenndi yfirsjón í umræðunni í einum staflið sem hv. þingmaður vísar til og yfirfærir á allar mínar breytingartillögur. Breytingartillögur mínar eru vel ígrundaðar. Þær eiga sér stoð í umsögnum sem við fengum frá fagfólki í skólamálum og mér þykir það þyngra en tárum taki en kannski lýsir það bara innræti einstaklinga í þessum sal þegar það er borið upp á okkur, aðra þingmenn, sem höfum lagt jafnmikið á okkur og meiri hlutinn að við séum með flausturslegar breytingartillögur. Mér þykir sorglegt að sjá að Samfylkingin skuli ekki geta stutt það að markmið skólastarfsins í leikskólunum skuli m.a. vera það að leggja ungum börnum það inn að (Forseti hringir.) þau eigi að bera virðingu fyrir mannréttindum.