135. löggjafarþing — 108. fundur,  26. maí 2008.

grunnskólar.

285. mál
[17:05]
Hlusta

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Herra forseti. Mannréttindahugtakið er skýrt afmarkað lagalegt hugtak og algilt. Manngildishugtakið er að sjálfsögðu mikilvægt einnig en felur í sér aðra skírskotun. Menn geta að sjálfsögðu haldið því fram að mikilvægir hlutar mannréttinda séu taldir upp að öðru leyti í greininni en það getur ekki verið til skaða að hafa það til fyllingar að mannréttindahugtakið sjálft sé þarna. Alþingi hefur fengið um það ábendingar frá virtum aðilum úti í samfélaginu að væri betra að hafa sjálft mannréttindahugtakið þarna skýrt tekið fram. Ég á því erfitt með að átta mig á því af hverju menn geta ekki fallist á það að þessi upptalning, þessi grein, verði eingöngu betri við það að taka mannréttindahugtakið fram, telja það þarna upp. Það er aðgerð í sjálfu sér að greiða atkvæði gegn því, það er sú afstaða sem þeir ætla að ýta núna á rauða hnappinn verða að bera pólitíska ábyrgð á hvað sem þeir reyna að segja hér.